ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

GRJÓTKAST ÚR MOGGAGLERHÚSINU

21:51 › 14. desember 2009

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins tekur í dag málstað Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar launamanns hjá Háskóla Íslands, gagnvart auðmönnum.

Þessir auðmenn eru Jón Ólafsson og Jóhannes Jónsson.
Jón hefur sótt meiðyrðamál gegn Hannesi í Bretlandi.
Jóhannes leyfði sér að ganga á fund rektors til að kvarta yfir meintri áróðursstarfssemi launamannsins í Háskóla Íslands gegn sér og fjölskyldu sinni.

Leiðarahöfundurinn hefur tekið að sér að verja lítilmagnann gegn kapítalistum.

Ætli hann sé marxisti?

Ætli hann gangi í bol með mynd af Che Guevara?

Kúgaði launamaðurinn í háskólanum var dæmdur fyrir ritstuld.
Rétttrúnaðarsamfélagið í Háskóla Íslands hefur ekki vísað honum á dyr úr háskólanum fyrir það.

Hannes Hólmsteinn var ráðinn launamaður hjá HÍ árið 1988 með fulltingi Birgis Ísleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra, flokksbróður Hannesar og vinarins sem nú kemur honum til varnar á Mogganum.

Minnumst þess að Hannes Hólmsteinn var ekki ráðinn til HÍ fyrir vísindaafrek sín heldur vegna skoðana sinna. Á þeim tíma var Sjálfstæðisflokknum einnig í nöp við "rétttrúnaðarsamfélagið" innan HÍ.

Birgir Ísleifur gaf út yfirlýsingu um ráðningu Hannesar Hólmsteins:
"Það er að dómi ráðherra æskilegt að ólíkar skoðanir á fræðigreininni eigi sér málsvara á vettvangi Háskóla Íslands. Í félagsvísindum er sérstaklega mikilvægt að tryggja fjölbreytni og frjálsa samkeppni hugmynda."

Flokksbræður Hannesar Hómsteins og vegjörðarmanns hans í Hádegismóum voru iðnastir allra við að kúga andstæðinga sína og hafa af þeim starfsframann á kaldastríðsárunum.

Einar Olgeirsson, einn helsti leiðtogi sósíalista á síðustu öld, segir svo frá í viðtalsbók Jóns Guðnasonar frá áttunda áratug síðustu aldar:


"Hernámssinnar, sem tiltluðu sig lýðræðissinna, veigruðu sér hvergi við að beita persónunjósnum, atvinnuofsóknum og beinni og óbeinni skoðanakúgun. Fátt eitt af þessum ófögru athöfnum þeirra hefur verið skrásett, enda hafa aðeins fáeinir, sem urðu fyrir barðinu á þessum ófögnuði, sagt frá reynslu sinni opinberlega. Þögnin um þessa óhæfu stafar af því meðal annars að menn hafa óttast reiði yfirvalda og ekki viljað láta koma sér algerlega út úr húsi."

Nú eru Hádegismóri og Hannes með harðlífi, láta eins og skepnur og fara hamförum yfir því að hafa ekki valdið til að snúa niður andstæðinga sína.

Grjóti er linnulaust kastað úr Moggaglerhúsinu.



 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?