Ég hlustaði á viðtal við Ögmund Jónasson, þingmann VG, á Rás 2 í morgun.
Mér heyrðist hann segja efnislega eitthvað á þessa leið:
1) Þjóðinni stafar hætta af útlendingum.
2) Úr því ég fæ ekki að ráða í þingflokki VG á að leggja niður flokka og innleiða nýtt lýðræðiskerfi þar sem hver þingmaður fylgir sannfæringu sinni. Gamla kerfið er ómögulegt og úrelt.
En hvernig er það? Ganga menn ekki í flokk vegna þess að þeir hafa sannfæringu og vilja fylgja stefnu hans á félagslegum grundvelli?
Er reglan um afl meirihlutans úrelt? Setjum sem svo að innan þingflokks sé ekki samstaða í einhverju máli. Er ekki ljóst að einfaldur meirihluti ræður ef mál er borið undir atkvæði?
Ég gæti vel talið upp alla þá sem stofnað hafa sérframboð utan um skoðanir sínar og afstöðu á undanförnum áratugum en nenni því varla. Fylgismenn sérframboðanna hafa væntanlega gengið til liðs við þau á grundvelli sannfæringar.
Hversu mjög sem málið er reifað mun á endanum verða bert og öllum augljóst að Ögmundi mistókst að vinna VG í heilu lagi á sitt band og vill ekki sætta sig við niðurstöðuna.
Sem nú Icesavemálið er ekki nema 10 til 15 prósent af heildarskuldavanda þjóðarinnar lítur allt út fyrir að Ögmundur muni á endanum fórna meiri hagsmunum fyrir minni; einstæðu samstarfstækifæri jafnaðar- og vinstrimanna um mikilvægar þjóðfélagsbreytingar.
Við sökkvum enn án ný ofan í séríslenskan pragmatisma, prinsíplausa framsóknarmennsku og forpokuð stjórnmál sem skortir kunnáttu, festu, myndugleika og félagsþroska.
Blogg
FORPOKUÐ ÍSLENSK STJÓRNMÁL
14:27 › 14. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
