ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

BLAÐAMANNASTÉTTIN SVÍVIRT

14:01 › 13. desember 2009

Því fleiri sem rannsaka aðdraganda íslenska bankahrunsins og möguleg lögbrot einstakra bankaforkólfa eða annarra, því betra.

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar Serious Fraud Office ætlar að rannsaka stórlán íslensku bankanna til þekktra viðskipamógúla.
Það er fínt.

Það er einnig gott að kveðnir hafi verið upp tveir dómar yfir bankamönnum fyrir markaðsmisnotkun. Það vekur vonir um að réttarkerfið virki.

Það er einnig gott ef fjölmiðlar ná sér á strik, fletta ofan af sukki og spillingu, og öðlast sjálfstraust til að standa í lappirnar eftir áralangt andrúmsloft þöggunar og sjálfsritskoðunar.
Það er mjög gott.

Það er mjög slæmt þegar fjölmiðill - Morgunblaðið - breytist við þessar aðstæður í ótínda áróðursmaskínu og ræður til sín aðalleikarinn og einn helsta gerandinn í bankahruninu sem ritstjóra sinn.
Það er svívirðilegt fyrir blaðamannastéttina og dregur úr trúverðugleika og starfsheiðri annarra fjölmiðla einnig.
Ég skora á Blaðamannafélag Íslands að gera eitthvað í málinu.

Versti óvinur íslensku þjóðarinnar er skortur á hlutlægni. Helstu forkólfar Flokksins og atvinnulífsins hafa um áratugaskeið þróað fullkomið samtryggingarkerfi um það hvernig skilgreina eigi íslenskan veruleika. Hvernig réttlæta eigi yfirráð fárra yfir auðlindum. Veruleikinn hefur verið á skilmálum þeirra sem verja þurfa sérhagsmuni. Þeir hafa notið aðstoðar taglhnýtinganna með flokksskírteinin í stjórnarráðinu.

Þetta er ein helsta ástæða þess að íslenskir ráðamenn komast alltaf upp með að þyrla upp moldviðri í kring um sannleikann þar til kjósendur missa áttir.
Meðal siðmenntaðra þjóða eru gerðar úttektir og mál rannsökuð. Stjórnmálamenn, fjölmiðlar og aðrir beygja sig undir vald sannleikans og veruleikans. Menn segja af sér vegna þess að þeir viðurkenna hlutlægar viðmiðanir.

Hér hefur geðþóttinn ráðið ferðinni.

Ísland þarf gagnrýna hugsun. Ísland þarf fólk sem tekur ekki viðstöðulaust við því sem að því er rétt.
Ísland þarf hugsandi ungmenni sem taka ekki gagnrýnislaust við fullmatreiddum veruleika sérhagsmunagæsluliðsins.
Ísland þarf raunsætt fólk með úthald sem hefur vilja til að breyta þjóðfélaginu.
Ísland þarf fólk sem lærir að draga sjálft sig og tilfinningar sínar út úr myndinni og hugsar hlutlægt um erfiðan of flókinn veruleikann sem við blasir.
Ísland þarf þolgóða og raunsæja stjórnmálamenn sem skilja þýðingu valdsins og viljans til að breyta þjóðfélaginu hægt en örugglega.

Burt með flautaþyrla!
Burt með væl!
Burt með geðþóttann!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?