Ríkisendurskoðun átelur Davíð Oddsson fyrir að hafa sólundað peningum Seðlabankans án trygginga í tíð sinni sem seðlabankastjóri síðustu mánuðina fyrir hrun.
Tökum dæmi um það sem rétt var gert.
Sænski seðlabankinn lánaði Kaupþingi í Stokkhólmi á ögurstundu gegn veðum í bankanum og eignum hans. Kaupþing féll og sænski seðlabankinn leysti til sín Kaupþing í Stokkhólmi.
Sænski seðlabankinn fékk allt sitt til baka og meira til þegar hann seldi Ålandsbankanum
eignirnar.
Seðlabankinn lánaði Kaupþingi gegn veði í FIH bankanum danska. Þar er varla um neitt tap að ræða, veðin í lagi.
Hvernig stóð á því að mánuðum saman lánaði Seðlabankinn íslensku bönkunum fé, keypti meðal annars skuldabréf fyrir tugi milljarða sem gefin voru út af Landsbankanum?
Landsbankinn notaði lánin til að kaupa ríkisskuldabréf og húsnæðisbréf og bauð evrópska seðlabankanum fyrir 100 milljarða.
Þetta er óskýrt og allt hið undarlegasta.
Blogg
ÓFAGLEGAR LÁNVEITINGAR SEÐLABANKA
11:26 › 12. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
