Það er óhjákvæmilegt að vekja athygli á þessari færslu Jónasar Kristjánssonar undir fyrirsögninni "Ég gerði það ekki".
Þetta eru í raun tæmandi leiðbeiningar fyrir þá sem hjakka alltaf í sama farinu: "Við borgum ekki skuldir einkafyrirtækja".
Textinn Jónasar er svona:
"Auðvitað vill meirihluti þjóðarinnar ekki borga fyrir IceSave. Þótt það nú væri. Meirihluti þjóðarinnar ber einmitt ábyrgð á IceSave. Kaus yfir okkur Davíð Oddsson. Einnig Halldór Ásgrímsson og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Líka Geir H. Haarde, Árna Mathiesen og Björgvin Sigurðsson. Kjósendur eru ábyrgir fyrir þessum höfðingjum og vilja auðvitað ekki skúra eftir þá. Árum samann hafa kjósendur haldið uppi pólitískum aulum, sem hafa reynzt eins og dæmin sanna. "Ég gerði þetta ekki", segja núna kjósendur í afneitun. Víst gerðu þeir það. Og víst verðum við öll að borga fyrir ruglið úr kjósendum."
Er þetta ekki megrur málsins?
Blogg
HUNDURINN SAGÐI EKKI ÉG...
19:08 › 12. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
