Það er ákaflega þreytandi að hlusta á vígreifa baráttumenn eins og Einar Má rithöfund og Ögmund stjórnmálamann taka undir með áróðursmaskínu hrunverja úr Sjálfstæðisflokknum um að þjóðinni beri ekki að ábyrgjast Icesave skuldirnar. Þetta er sárgrætilegt í tilviki Ögmundar þar sem hann er nánast arkitektinn að því að settir voru fyrirvarar við samninginn af hálfu Alþingis. HANN, öðrum fremur, hafði það í gegn síðastliðið sumar að settir voru fyrirvarar. Síðan gerðist það að þolendur ræningjanna frá Íslandi, Hollendingar og Bretar, settust niður með niðurstöðu Alþingis og voru ekki fyllilega sáttir. Samningsaðili A (Hollendingar og Bretar) settust niður með B (Íslandi) og komust að niðurstöðu C. Allt var það ofur eðlilegt. Fyrirvararnir eru ekki meira breyttir en svo að Ögmundur gæti enn staðið við að Alþingi hafi gengið eins langt og komist varð. Og enn væri það að miklu leyti honum að þakka. Þess í stað kemur hann þungbrýndur í pontu á Alþingi, stillir sér upp með vanstilltri og heimskulegri stjórnarandstöðunni, og rekur rýting í bak stjórnarliða. Hvað kom fyrir Ögmund? Allir vita hvað hann vill EKKI en enginn veit hvað hann raunverulega vill? Vill hann nú inn í ríkisstjórnina til að bjarga henni? Við Ögmund, sem ég ber virðingu fyrir, vil ég segja eftirfarandi: A) Tryggingarsjóðurinn er ríkisstofnun, byggður á lögum frá Alþingi og undir stjórn efnahags- og viðskiptaraðherra. Þótt bankarnir eigi fulltrúa í stjórn hans eru þeir einnig skipaðir af ráðherranum. B) Samkvæmt lögum skal Tryggingasjóður innstæðueigenda fjármagnaður með lántökum , eins og nú er reynt að gera. Peningaleysi sjóðsins leysir hann ekki undan ábyrgð frekar en aðra peningalausa. C.) Opinberir aðilar hafa við ýmis tækifæri marglýst því yfir að ríkið ábyrgist sjóðinn. Þótt ekkert annað kæmi til en einmitt þetta nægir það til ábyrgðar. Vangaveltur um það hvort kerfið sé vont eða óréttlátt skipta því miður ekki máli í þessu samhengi. Hinar döpru óumflýjanlegu staðreyndir eru þessar: Landbankinn tók 1.000 milljarða að láni hjá hollenskum og breskum sparifjáreigendum. Honum var það kleift aðeins vegna þess að hann naut til þess fulltingis íslenska ríkisins. Þetta var dæmigerður íslenskur pilsfaldakapitalismi eins og Ögmundur þekkir hann. Nú er því miður komið að skuldadögum. Greinargerð Ögmundar með atkvæði hans gegn Icesave á þingi í vikunni er órökrétt, óskynsamleg og óskiljanleg og eykur hættuna á glundroða. Þurfum við á slíku að halda nú?
Hann hefur sagst hafa bjargað ríkisstjórninni með því að ganga út úr henni.
Blogg
ÓRÖKRÉTT, ÓSKYNSAMLEGT OG ÓSKILJANLEGT
15:31 › 10. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
