ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

DV OG SKOLPRÖRIÐ

20:35 › 7. nóvember 2009

Bara svona til að það sé á hreinu.

DV birtir í helgarútgáfunni niðurstöður könnunar sem fjallar um fjölda áskrifenda að Morgunblaðinu. DV er kunnugt um að könnunin hafi einnig náð til Skjás 1 enda stendur fyrir dyrum að gera Skjá 1 að áskriftarsjónvarpi.

Það væri ábyrgðaraust af birtingar- og auglýsingafyrirtækjum að kanna ekki útbreiðslu. lestur, áhorf, hlustun og svo framvegis. Þetta er í rauninni einfaldur business. Auglýsendur spyrja: Hvað fæ ég fyrir peninginn?

Mér sýnist könnunin vera einfalt viðbragð auglýsenda við skorti á haldbærum upplýsingum frá t.d. Morgunblaðinu um fjölda áskrifenda.

Niðurstöður könnunarinnar vísa til þess að 10 til 12 þúsund áskrifendur hafi yfirgefið blaðið eftir að Davíð Oddsson tók við starfi ritstjóra.

Þetta er um fjórðungur áskrifenda.

Ég held að Morgunblaðið ætti að hætta feluleik sínum og horfast í augu við sannleikann, láta markaðnum í té upplýsingar um fjölda áskrifenda í stað þess að hrópa niður DV eins og gert er í Staksteinum blaðsins á laugardag. Kallar DV skolprör.

DV gerir ekkert annað en að vinna hvunndagsleg störf við að afla frétta, vinna úr upplýsingum og matreiða þær. Ráðning Davíðs Oddssonar sem ritstjóra þótti tíðindum sæta, ekki síst vegna þess að hann er einn þeirra manna sem sætir rannsókn vegna bankahrunsins. DV hefur áhuga á honum sem fréttaviðfangsefni.

Mín skoðun er sú að það hafi verið alvarleg afglöp að ráða Davíð sem ritstjóra. Allt í einu var helsta viðfangsefni íslenskra fjölmiðla á erfiðustu tímum í lífi þjóðarinnar sest í ritstjórastól Morgunblaðsins.

Skilur enginn ennþá að Davíð Oddsson mátti aldrei verða ritstjóri fyrr en í fyrsta lagi eftir að rannsókn á bankahruninu væri lokið? Að ráðning hans er til vansa fyrir íslenska blaðamennsku? Heimóttarleg spillingin flæðir frá Mogga Davíðs og rústar trúverðugleika fjölmiðlanna, langt út fyrir Morgunblaðið.

Og á daginn kemur að almenningur er einmitt þessarar skoðunar.

Fjöldauppsagnir á áskrift Morgunblaðsins sýnir það betur en nokkuð annað.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?