Ég hlustaði á morgunútvarp Bylgjunnar eftir klukkan átta í morgun.
Þar vall ótrúlegt vitleysa upp úr Óla Tynes fréttamanni.
Það eyðilagði daginn fyrir mér.
Ég ætla að sleppa tilraunum Óla til þess að vera fyndinn á kostnað kvenna.
En eyjaskeggjafordómar hans – einskonar útlendingatortryggni - fóru með mig.
Hvað sagði Óli Tynes fréttamaður?
Á honum mátti skilja að við ættum að fara úr Schengen samstarfinu vegna þess að hingað streyma glæpamenn frá Eystrasaltsríkjunum.
Það að sínu leyti er að mati Óla Tynes líklega Jóni Baldvin Hannibalssyni að kenna. Hann hafi verið utanríkisráðherra á sinni tíð og gerði sér dælt við nýfrjáls Eystrasaltslöndin.
Við verðum að efla varnir okkar gegn innstreymi glæpamanna til landsins hélt Óli.
Vill hann hefta aðgang að landinu vegna þess að við eigum fullt í fangi með eigin glæpamenn?
Aldrei að vita nema íslenskir glæpamenn flytji til útlanda.
Aldrei að vita nema Íslendingar t.d. í Bretlandi eða Eystrasaltslöndunum stundi eitthvað sem þolir illa dagsins ljós?
Þarf ekki að koma í veg fyrir komu Íslendinga til Argentínu og annarra ríkja Suður Ameríku til að draga úr fíkniefnasmygli í álfunni? Var ekki íslenskur lögregluþjónnn tekinn með 5 kíló af kókaíni í Argentínu um daginn?
Shengen samstarfið snýst um eftirfarandi ef Óli Tynes er ekki með á nótunum:
Að tryggja frjálsa för einstaklinga um innri landamæri samstarfsríkjanna (sem í raun eru nú orðin 23) og hins vegar að styrkja baráttuna gegn alþjóðlegri afbrotastarfsemi.
Óli hefði átt að hlusta betur á orð Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra á Bylgjunni í gærmorgun.
Jónas Kristjánsson túlkar orð Stefáns svona í bloggi sínu í gær:
„Útlendingastofnun túlkar lögin út og suður, enda hefur hún tugi lagatækna á kaupi. Hún túlkar lög um flóttamenn á versta veg fyrir þá. Hins vegar túlkar hún lög um glæpamenn á bezta veg fyrir þá. Það kom fram á Bylgjunni í dag hjá Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra. Hann segir, að lög um glæpamenn séu eins hérlendis og í Danmörku. Samt sé mönnum þar vísað úr landi við fyrsta brot, en hér séu þeir látnir eiga sig. Hann vill nota brottvísunarheimildir, áður en menn fara að rífast út í Schengen-aðildina. Varla er það lagatæknin, sem vefst fyrir stofnuninni. Þar er fólkið bara of latt til þess að vinna.“




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
