ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

VINIR VERKTAKANNA

22:31 › 5. nóvember 2009

Í lögum sem samþykkt voru á Alþingi í lok ágúst er gert ráð fyrir að stjórnmálaflokkar og frambjóðendur skili gögnum til Ríkisendurskoðunar um kostnað við prófkjörsbaráttu sem aðra kosningabaráttu fyrir 15. þessa mánaðar. Stjórnmálaflokkarnir eiga að taka saman gögn frá 2002 en látið duga að einstakir frambjóðendur sýni ríkisendurskoðanda gögn aftur til ársins 2005.

Vitanlega er gert ráð fyrir því að upplýsingarnar verði birtar.

Svo vofir yfir stjórnmálunum að reglur um mútubrot verði hertar sem og viðurlög við þeim. Þá er við búið að stjórnmálamenn verði í framtíðinni að gera grein fyrir gjöfum og mælst er til þess að gjafir verði skilgreindar betur en nú er gert.

Gagnsæissamfélagið í fæðingu?

Vonandi verður Óskar Bergsson borgarfulltrúi Framsóknarflokksins búinn að gera grein fyrir tengslum sínum við byggingarfélagið Eykt fyrir þann tíma.

Hann beitti sér í þágu þess í borgarkerfinu. Lét breyta útboðsreglum í miðjum klíðum til að koma félaginu að.

Eða eins og segir í Hávamálum:

Vini sínum
skal maður vinur vera
og gjalda gjöf við gjöf.
Hlátur við hlátri
skyli höldar taka
en lausung við lygi

En hvernig var þetta eiginlega? Vorum við ekki alveg laus við spillingu? Besta land í heimi?




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?