ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

GETULAUS 63 MANNA BJÖRGUNARSVEIT

22:22 › 30. nóvember 2009

Ef Alþingi væri 63 manna björgunarsveit verður að segjast eins og er að sú sveit er bæði svifasein, illa þjálfuð og ekki vanda sínum vaxin.

Þessi björgunarsveit hefur nú í hálft ár reynt að lágmarka skaða þjóðarinnar af Icesave.
Þessi björgunarsveit festi sig í feni lagahyggjunnar og sjálfsvorkunnarinnar sem birtist svo vel í nýjasta hrunbókartitlinum; Umsátrið (lesist: Allir eru vondir við okkur.) 

Nú hafa þingmenn talað í 60 klukkustundir í annarri umræðu á Alþingi um nýjustu úrfærslu Icesave-fyrirvaranna og skuldbindingar sem tryggingasjóði innstæðueigenda er ætlað að bera gagnvart sparifjáreigendum. Mig varðar ekkert um hvar þeir eiga heima, allir eru þeir sparifjáreigendur sem Landsbankinn reyndi að ræna með vitund, vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda eins og æ betur er að koma í ljós. 

Eru þingmenn að reyna að sannfæra þjóðina um að vextir af Icesave skuldinni séu of háir?
Eru þingmenn að reyna að segja þjóðinni að halda verði opinni dómstólaleiðinni?
Reyna þingmenn að segja kjósendum að vinir okkar hafi breyst í óvini, til dæmis Norðurlandabúar?
Reyna þingmenn að segja kjósendum að AGS sé þjónn heimsauðvaldsins sem haldi þjóðinni í spennitreyju?
Reyna þingmenn að segja þjóðinni að leikreglurnar séu okkur mótdrægar og óréttlátar og samdar á skilmálum Hollendinga og Breta?
Vilja þingmenn telja kjósendum trú um að greiðslufresturinn sé of stuttur?
Reyna þingmenn að telja þjóðinni trú um að hún eigi ekki að borga skuldir sínar?
Vilja þingmenn að það berist þjóðinni að innstæðutryggingakerfi ESB sé óréttlátt og mótdrægt þjóðinni?
Og svo framvegis...

Fyrirgefið, en þjóðin er búin að hlusta á þetta í hálft ár. Hún má ekki vera að því að hlusta á þessa getulausu 63 manna björgunarsveit lengur.

Hún mun krafla sig út úr þessu alveg óháð því hversu lengi Illugi, Birgir, Bjarni, Höskuldur, Vigdís, Sigmundur, Þorgerður, Þór og þau öll hin tala. 

Lækning sú sem þingið býður þjóðinni er verri en plágan sem yfir hana dundi. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?