Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir eftirfarandi í samtali við Agnesi Bragadóttur í Morgunblaðinu í dag um afskriftir skulda Haga.
Agnes spyr:
„Er það forsvaranlegt að selja gömlum eigendum Haga 60 prósent eignarhlut fyrir 7 milljarða króna?“
Bjarni svarar:
Ég hef engar forsendur til þess að meta verðin í þessu máli Haga. En ég held að það sé skynsamlegt sem menn hafa verið að leggja upp með, að gefa eigendum félaganna tækifæri. Ef eigendum félaganna eru ekki gefin tækifæri til að koma inn með nýtt fjármagn, þá munu menn alltaf lenda á afar gráu svæði. Þetta verður að vera viðskiptaleg ákvörðun og ég held að við værum komin aftur út á hættulegar brautir ef við stjórnmálamenn ætlum að segja: Það eru þessir menn sem mega vera með og hinir ekki.“
Athyglisvert hjá formanni Sjálfstæðisflokksins: ÞAÐ ERU ÞESSIR MENN SEM MEGA VERA MEÐ OG HINIR EKKI!
Ég heyri einhvern enduróm frá forsætisráðherratíð ritstjóra Agnesar. Fæ einskonar "deja vu".
Hverjir voru útvaldir og nutu náðar og velvildar? Hverjir voru óhreinir og fengu ekki að vera með? Réðu viðskiptasjónarmiðin hans Bjarna þá?
Ég reikna með að Einar Sveinsson og Benedikt Sveinsson (faðir Bjarna), Bjarni sjálfur og aðrir helstu eigendur N1s vilji að jafnræðis sé gætt og eigendum N1s verði gefið tækifæri til að koma með nýtt fé inn í félagið ef illa fer. N1 skuldar 27 milljarða sem er langt, langt umfram eignir.
Ég þykist líka vita að Íslandsbanki hefur sýnt N1um umburðarlyndi og viðskiptalega velvild að undanförnu og þykir ef til vill nóg að hafa Skeljung í fanginu.
Bankinn á líkast til 49 prósent hlut í Skeljungi eftir að hafa selt nýjum eigendum meirihluta. Skeljungi stýrir nú Einar Örn Ólafsson, vildarvinur Bjarna og flokksbróðir, sem hefur verið svo vænn að hýsa stuðningsmannafélag formannsins heima hjá sér á Einimel í Reykjavík.
Þeir sem tala hæst um gagnsæi og trúverðugleika eiga alltaf að byrja á því að gera grein fyrir sjálfum sér.
Blogg
„ÞESSIR MEGA VERA MEÐ - HINIR EKKI“
10:40 › 3. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
