ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

STÍGIÐ FRAM HUGSANDI SJÁLFSTÆÐISMENN

13:33 › 26. nóvember 2009

Engin von er til þess að orðræðan í litla íslenska þjóðfélaginu breytist fyrr en persónur og leikendur gamla klíkuþjóðfélagsins sem hrundi eru farnir af sviðinu.

Fyrir tilverknað sægreifa og harðsnúinna klíkubræðra hefur nú sjáfur hrunhöfðinginn, Davíð Oddsson, fengið Morgunblaðið til umráða. Menn vildu hann ekki þar á bæ fyrir 9 árum. Í hrundu íslensku þjóðfélagi þykir passa að gera hann að ritstjóra.

Að baki malla gamalkunnir hagsmunir Landssambands íslenskra útvegsmanna sem kostar hverju sem er til þess að verja veðsetta séreign sína á óveiddum fiski í sjó og andskotast út í Evrópusambandið.

Lengst til vinstri á pólitíska sviðinu lifir í einhverjum glæðum hugsjóna sem fóðra þjóðrembu og vanmetakennd sem birtist í hatri á lögmálum kapítalismans. Þetta kveikir sambærilega andúð ystavinstrisins á ESB, AGS,  Icesave-samningum,  Hollendingum og Bretum og vellur daglega upp úr graftrarkýlum í Hádegismóum.

Eymdin og vanmetakenndin birtist í ergilegu þrasi um hroka, frekju, yfirgang og undirhyggju nágrannaþjóða í garð litlu sætu saklausu Íslendinganna.

Ekkert breytist fyrr en eldur endurnýjunaraflsins innan Sjálfstæðisflokksins nær að kveikja í frambærilegum arftökum gamla spillta Íslands sem gera upp við Davíð Oddsson og forstokkaðar  tilraunir hans til að rita samtímasöguna sér í hag. Þær tilraunir eru móðgun við heilbrigða skynsemi.
Svei þeim lítilsigldu taglhnýtingum sem eru einmitt þessarar skoðunar en þora aldrei að tjá hug sinn af ótta við eitthvað. Eiga sér eitt lífshlaup en lifa sem barðir hundar í skugga Foringjans.
Hvar er kjarkurinn Bjarni? Hvar er vitið Illugi? Hvar er einlægnin Þorgerður? Hvar eru heilindin Ólöf? Stígið fram, þjóðin þarf á ykkur að halda. Hjálpið þjóðinni út úr eymd þessa svarthvíta niðurlægjandi veruleika sem farinn er að þjaka börn okkar.

Við hvað eru menn hræddir?

Svo mikið er víst að Steingrímur J. Sigfússon á nóg með að slökkva elda í eigin flokki og eru því úr honum dregnar vígtennur til að fara af öllu afli gegn fortíðinni. Honum er vorkunn með fólk innanborðs í VG sem skilur ekki sinn vitjunartíma en hrífst af athygli þeirri sem það fær ofan úr Hádegismóum.
Nytsamir sakleysingjar.

Ég nenni varla að tala um geðleysi Samfylkingarinnar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?