Hvenrig stendur á því að íslensku þjóðinni er svo gjarnt að líta svo á að umvandanir annarra þjóða í okkar garð jafngildi því að þær séu okkur óvinveittar?
Er ekki vinur sá sem til vamms segir?
Tökum dæmi: Í bók Styrmis Gunnarssonar fyrrverandi ritstjóra Moggans, segir frá því að eftir "umsátur" annarra þjóða gegn íslenska bankakerfinu hafi því verið settir úrslitakostir. Svarti sauðurinn var Landsbankinn og söfnun bankans á sparifé almennings í Bretlandi og síðar Hollandi.
Styrmir greinir frá því að kröfur breska fjármálaeftirlitsins hafi farið stigvaxandi eftir því sem leið á árið 2008. Lausnin var að flytja Icesave í breska lögsögu, í dótturfélag í Bretlandi, en til þess þurfti Landsbankinn að flytja fimmtung eiginfjár síns til Bretlands sem tryggingu á móti lántökunni hjá breskum sparifjáreigendum. Bankinn þurfti 300 til 500 milljarða króna lán!
Þá peninga átti Landsbankinn ekki til, aðallega vegna harðræðist og óvildar sem gætti í garð Íslendinga að mati Styrmis.
Landsbankamönnum voru settir úrslitakostir um að samkomulag um þetta yrði að nást fyrir lok ágúst í fyrra. " Náist ekki samkomulag verði starfsemi Landsbankans í Bretlandi stöðvuð."
Þessu svaraði víst Davíð Oddsson seðlabankastjóri með harðorðu bréfi til Mervyn King seðlabankastjóra Englandsbanka. "Þið ógnið fjármálakerfi heillar þjóðar", eða eitthvað á þá leið.
Allt er þetta hið undarlegasta því "ljóst er af þessum bréfaskriftum að rekstur Landsbankans hefur verið kominn í uppnám um miðjan ágúst 2008 og raunar fyrr," segir Styrmir.
Á sama tíma voru góðvinir okkar innan Seðlabanka Norðurlanda búnir að missa þolinmæðina með okkur.
Bretar og Hollendingar voru búnir að missa þolinmæðina með okkur.
Seðlabanki Evrópu og Bandaríkjanna voru búnir að missa þolinmæðina með okkur.
Allir voru búnir að loka, gefa okkur puttann.
Ástæðurnar blasa við. Breska fjármálaeftirlitið sagði eitthvað á þessa leið við Landsbankamenn (endursögn Styrmis) í lok júlí 2008:
"Efnahagsástandið á Íslandi er að okkar mati verra en þið viljið halda fram og í því felst að áhættan fyrir breska innstæðueigendur í Landsbankanum eru meiri. Við teljum ekki að Seðlabanki Íslands geti verið lánveitandi til þrautavara eða að hann geti fjármagnað innstæðukerfið íslenzka."
Fyrirgefið, en er þetta ekki allt rétt og sannleikanum samkvæmt hjá breska fjármálaeftirlitinu?
En hvað var gert hér heima? Hvaða gáfumenni leyfðu til dæmis Landsbankanum að opna
Icesave í Hollandi 29. maí 2008 og safna 300 milljörðum króna fram að hruni?
Blogg
VINUR ER SÁ SEM TIL VAMMS SEGIR
05:23 › 24. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
