Af 550 milljarða króna skuld sjávarútvegsins er helmingurinn ef ekki meira til kominn vega kvótakaupa fyrirtækja sem enn starfa í greininni. Mestur hluti skuldanna er í erlendri mynt.
Tekjur sjávarútvegsins í krónum hafa sem betur fer hækkað með falli krónunnar. Krónufallið er hins vegar tvíbent þar sem skuldirnar hækka einnig. Meira en fimmtungur þeirra hefur nú þegar verið frystur, enda er að minnsta kosti fjórðungur sjávarútvegsfyrirtækja á heljarþröm og enn fleir með neikvæða eiginfjárstöðu.
Stundum hefur verið sagt að atvinnugrein sem greitt getur hundruð milljarða króna fyrir kvóta hljóti allt eins að geta leigt kvótann af ríkinu gegn hóflegu gjaldi. Gera út á nýtingarrétt en ekki eignarrétt á óveiddum fiski í sjó.
En þetta mega boðberar séreignarréttarins ekki heyra nefnt. Þorsteinn Pálsson, gamall sjávaráutvegsráðherra LÍÚ, rís upp og bókar í viðræðunefnd um aðild að ESB að fyrningarstefna stjórnvalda í sjávarútvegi veiki stöðu Íslands í viðræðunum.
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fordæmir skötuselskvótann sem Jón Bjarnason ætlar að leigja og tekur upp þykkjuna fyrir LÍU. Skárra væri það nú; hann var einn þeirra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem sá til þess um miðjan síðasta áratug að unnt yrði að veðsetja kvóta sem séreign útgerða.
Vopnabræðurnir Þorsteinn Pálsson og Vilhjálmur Egilsson eru sem sagt sjálfum sér samkvæmir um þýðingu séreignarréttarins yfir auðlindum sjávar.
Við þekkjum merkin. Þorsteinn (sjávaraútvegsráðherrann fyrrverandi), Samtök atvinnulífsins (Vilhjálmur), Morgunblaðið, LÍÚ, Samtök fiskvinnslustöðva og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins taka nú upp glerharða andstöðu við fyrningarleiðina. Þeir munu setja allan þann áróðurspening í Moggann sem þarf til að brjóta á bak aftur fyrirhugaðar breytingar sem stjórnvöld vilja gera á kvótakerfinu.
Þorsteinn sem svo mjög vill gaga í ESB áttar sig ekki á því að þessi barátta LÍÚ klíkuveldisins verður líka barátta gegn aðild að ESB. Enn ekki hvað?
Er ekki rétt að ESB sinnarnir Þorsteinn og Vilhjálmur segi stjórnvöldum umbúðalaust hvað þeir raunverulega vilja og í hvaða liði þeir spili?




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
