ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ER EKKI EINMITT ÞETTA LANDRÁÐ?

17:18 › 22. nóvember 2009

Því skýrari mynd sem stjórnvöld, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið höfðu af vanda Landsbankans og því fyrr sem þeim varð vandi bankans ljós - eins og ráða má af bók Styrmis Gunnarssonar - því stærri er glæpur þeirra.

Í lögum um fjármálafyrirtæki hafði Fjármálaeftirlitið ótvíræða heimild til þess að stöðva stofnun útibús Landsbankans í Hollandi ef því sýndist fjárhagur og stjórnun bankans í ólestri. Það er öldungis ÓTVÍRÆÐ HEIMILD í grein 36.

En klíku- og flokksbræðurnir í Landsbankanum, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu vissu sem var að ef þeir stöðvuðu söfnun sparifjár meðal saklausra Breta eða Hollendinga færi Landsbankinn á hausinn. Það breytir hins vegar engu um lagabókstafinn. FME gat hæglega stöðvað opnun Icesave í Hollandi. Þess í stað margfaldaði FME og Seðlabankinn tjónið.

Ég vona að menn gleymi því aldrei að Landsbankinn opnaði formlega Icesave starfsemi sína í Hollandi svo seint sem 29. maí 2008!!!!! - Bankinn var þá raunar í gjörgæslu og erlendis voru allir búnir að loka á fjármögnun.

Seðlabankinn fylgdi eftir og keypti ónýt skuldabréf gefin út af Landsbankanum. Fyrir andvirði þeirra keypti bankinn ríkis- og húsnæðisskuldabréf og seldi seðlabanka Evrópu fyrir evrur. 100 milljarðar þar!  Þjóðin borgar milljarða í vexti af þeirri skuld einni ár hvert.

Sjá menn ekki meðvirknina? Kunningja- og klíkuþjóðfélagið að störfum í þágu Landsbankans?

Svo þegar kom að Þorsteini Má Baldvinssyni og vandræðum Glitnis í lok september í fyrra þótti seðlabankastjóranum sjálfsagt að lækka hluti eigenda bankans í snarheitum um 88 prósent. Svarthvít heimsmynd formanns bankastjórnar Seðlabankans að verki. Heimskan uppmáluð.

Í fljótu bragði virðist mér vera hér um að ræða meiriháttar og afdrifarík lögbrot FME og Seðlabankans að ræða að ekki sé talað um afglöp og andvaraleysi Geirs Haarde og ríkisstjórnar hans.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?