ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

SVAR MENNTAMÁLARÁÐHERRA

22:17 › 21. nóvember 2009

Ég spurði Katrínu Jakobsdóttur spurninga um stöðu ráðuneytisstjóra í menntamálaráðuneytinu sem auglýst hefur verið laust til umsóknar. Ég var ekki viss um að reglum væri fylgt um hæfniskröfur o.s.frv.og spurði því í bloggi mínu.
Hún hefur nú verið svo vinsamleg að svara spurningum um auglýsinguna í tölvupósti sem ég leyfi mér að birta hér með í nafni gagnsæis.

...

Heill og sæll,
rakst á blogg hjá þér sem var fyrirspurn til mín. Mig langar að senda þér svör - enda var ætlunin að gera þetta kórrétt. Þannig að hér koma skýringar:

Um skilyrði til þess að gegna embætti ráðuneytisstjóra er fjallað í 6. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem geymir hin almennu skilyrði til þess að geta fengið skipun í embætti. Þ á m. almenna menntun og þar að auki þá sérmenntun sem lögum samkvæmt er krafist eða eðli málsins samkvæmt verður að krefjast  til þess að geta gegnt starfinu.  Um skipulag og uppbyggingu ráðuneyta er fjallað í lögum um Stjórnarráð Íslands. Þau ákvæði geyma ekki sérstök skilyrði um menntun eða hæfni til þess að geta gegnt embætti ráðuneytisstjóra.


Samkvæmt þessu eru verulegar skorður settar við því að í auglýsingu séu gerðar sérstakar hæfniskröfur eða skilyrði sem geta leitt til þess að takmarka rétt  manna til þess að geta sótt um embættið. Má í því sambandi benda á auglýsingar um embætti umboðsmanns barna á sínum tíma, sbr. álit umboðsmanns Alþingis í máli frá 26. júní 1996 í máli nr. 1391/1995 (http://umbodsmaduralthingis.is/skyrslur/skoda.asp?Lykill=234&Skoda=Mal) og einnig við veitingu sama embættis í máli nr. 42/79/2004 (http://umbodsmaduralthingis.is/skyrslur/skoda.asp?Lykill=1139&Skoda=Mal). Í því máli vísaði umboðsmaður til þess að ráðherra gæti að jafnaði ekki í auglýsingu um starfið sett strangari skilyrði um almennt hæfi að því er varðar menntun en þau sem fram koma í lögum nema slíkt teldist málefna legt og sýnt væri fram á ótvíræða nauðsyn þess að gera slíkar kröfur. Ekki þóttu vera fyrir hendi skilyrði til þess að setja sérstök skilyrði um menntun. Vegna tilvísunar þinnar til embættis landlæknis skal bent á að í lögum um landlækni er tekið fram að skipa skal í embætti landlæknis að fengnu mati sérstakrar nefndar og tekið fram að landlæknir skuli hafa „sérfræðimenntun í læknisfræði og víðtæka reynslu eða menntun á sviði stjórnunar“. Sérstakar hæfniskröfur eru ekki gerðar í þjóðgarðsvarðarins á Þingvöllum. Um störf hans gilda hins vegar lög um þjóðgarðinn á Þingvöllum.

Hvað viðkemur tilvísun þinni til reglna nr. 464/1996 þá er alveg ljóst að samkvæmt 1. gr. hennar eiga reglurnar ekki við um ráðuneytisstjóra, sem teljast embættismenn. Engu að síður er reynt að fylgja 4. gr. reglnanna en hún er svohljóðandi:

4. gr.

Í auglýsingu um laust starf skulu að minnsta kosti vera upplýsingar um eftirfarandi:


  1. Hver veitir nánari upplýsingar um starf.
  2. Hvert á umsókn að berast.
  3. Hvort hún eigi að vera á sérstökum eyðublöðum og ef svo er hvar sé hægt að fá þau.
  4. Umsóknarfrestur.
  5. Hvaða starf/starfssvið er um að ræða. Þar komi fram lýsing sem sé nægjanlega greinargóð til þess að væntanlegur umsækjandi geti gert sér glögga grein fyrir því í hverju starfið felst.
  6. Starfshlutfall.
  7. Hvaða menntunar- og/eða hæfniskröfur gerðar eru til starfsmanns.
  8. Hvaða starfskjör eru í boði.
  9. Stjórnunarleg staða starfsins innan stofnunar/ríkisfyrirtækis.
  10. Hvenær starfsmaður skuli hefja störf.
  11. Að öllum umsóknum verði svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.



Sé efni auglýsingarinnar borið saman við ofangreint má sjá að þar er í öllum meginatriðum fylgt þeim kröfum sem þarna koma fram. Ekki varð gerð krafa um að umsóknin væri á sérstöku eyðublaði. Hægt er að fallast á að tilgreina hefði mátt betur lýsing á starfinu. Þó má segja að í raun velkist fáir í vafa um hvað felst í störfum ráðuneytisstjóra. Í því sambandi má benda á auglýsingu um skipulag ráðuneytisins, nr. 181/2007, og jafnframt er birt á vefsíðu ráðuneytisins (http://www.menntamalaraduneyti.is/raduneyti//nr/3242) Auk þess var ljóst hver skyldi veita nánari upplýsingar um starfið. Embætti eru nær undantekningarlaust fullt starf. Um hæfnikröfur vísast til þess sem sagt er hér að framan. Ráðuneytið svar alltaf öllum umsóknum.

Þeir málaflokkar sem falla undir einstök ráðuneyti eru afar mismunandi og innan ráðuneyta er starfandi fólk með ólíkan bakgrunn og menntun. Það er alveg ljóst að ráðherra er bundinn af því að byggja ákvörðun sína á málefnalegum sjónarmiðum. Þau sjónarmið sem byggt verður á verða með öðrum orðum að vera til þess fallinn að varpa ljósi á getu þess sem sækir um starfið til þess að gegna því. Um er að ræða heildstætt mat sem ráðherra verður síðan að vera tilbúinn að standa fyrir og rökstyðja opinberlega.



Bestu kveðjur í bili,


Katrín.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?