ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ÓJÖFNUÐUR NÆRIR ÁTÖK

06:55 › 21. nóvember 2009

“Stóraukinn ójöfnuður á Íslandi síðustu ár er áhyggjuefni m.a. vegna þess, að fámenn samfélög búa yfirleitt við meiri jöfnuð og frið en fjölmennari og sundurleitari samfélög. Á Norðurlöndum hafa jafnaðarstefna og fámenni lagzt á eitt. Aukinn ójöfnuður veldur þó einnig áhyggjum í Bandaríkjunum. Ben Bernanke seðlabankastjóri þar í landi lét málið til sín taka um daginn í prýðilegri ræðu og varaði þar við auknum ójöfnuði með þeim rökum, að of mikilli misskiptingu fylgir hætta á sundrungu og úlfúð og þá um leið hætta á minni grósku í efnahagslífinu (og meiri verðbólgu, t.d. vegna þess að launþegar leiðast til að heimta óraunhæfar skaðabætur í kjarasamningum). Sama hætta steðjar nú að Íslandi.”


 


Textann hér að ofan ritaði Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor í Fréttablaðið 1. mars árið 2007.


 


Nú kemur Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Moggans fram á ritvöllinn í nýrri bók; talar meðal annars um illvígar deilur, róg og illt umtal um náungann. “Við Íslendingar erum eins og fjölskylda, sem föst er í vítahring innbyrðis átaka, sem valda því að hún kemst hvorki lönd né strönd.”
Hann telur jafnvel að átökin og áróðurinn sé orðinn markvissari og illskeyttari en áður.


 


Vísbendingar eru um að ójöfnuður á Íslandi sé nú með því mesta sem gerist í allri Evrópu og hafi aukist hröðum skrefum á skömmum tíma. Árið 1993 var ójöfnuðurinn 0,21 á GINI stuðli ( jöfnuðurinn er alger við 0 en fullkominn ójöfnuður við 1,0).


Árið 2007 stóð ójöfnuðurinn í 0,42.


Þessu er þannig lýst að tekjuhæsti fjórðungur hjóna hefur nú sex sinnum hærri tekjur en tekjulægsti fjórðungur hjóna í landinu. 


 


Veltum um stund fyrir okkur mögulegum orsökum átaka, úlfúðar, illvígra deilna, rógs og ills umtals um náungann.


Munum einnig, að hópar sem komast yfir einhver forréttindi láta þau aldrei af hendi átakalaust.


Aldrei!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?