Eitt vekur sérstaka athygli mína við lestur Umsátursins, nýrrar bókar Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins.
Hann talar um sjúkt íslenskt þjóðfélag.
Hann segir að sjúkleikinn hafi grafið um sig í áratugi.
Hann vill gagnsæi, að allar mikilvægar upplýsingar verði aðgengilegar öllum mönnum.
Og segir: “Það má færa rök fyrir því, að slík birting opinberra gagna yrði einhver mesta hreinsun, sem um gæti verið að ræða í íslenska fjölmiðlafjósinu, þar sem lítið hefur verið gert af því að moka flórinn sem þó þarf að gera nokkrum sinnum á dag til þess að fjós sé sæmilega hreint eins og vanir fjósamenn vita. Í einu vetfangi væri fótunum kippt undan lágkúrulegri fjölmiðlun sem meirihluti fólks er þreyttur á og hefur skömm á. Og um leið yrði athyglisverð breyting á valdahlutföllum í samfélaginu. Skyndilega misstu þeir völdin sem hafa þrifist í skjóli leyndarinnar, sem hvílt hefur yfir stóru og smáu.”
Þessi orð Styrmis má skoða í ljósi þess sem hann segir í inngangi bókar sinnar: “Höfundur (Styrmir) þessarar bókar hefur í hálfa öld starfað fyrst á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og síðar á Morgunblaðinu, fyrst í fjarlægð frá valdakjarna samfélagsins en eftir því sem árin liðu sífellt nær honum og kannski um skeið verið hluti af honum.”
Athyglisverðast af öllu er hver segir þetta: Styrmir Gunnarsson, sem löngum hefur talað til lesenda Morgunblaðsins eins og sá sem veit betur, leynir upplýsingum og leggur út upplýsingar í ákveðnum tilgangi. Fyrir FLOKKINN! Jón Baldvin Hannibalsson sagði um Styrmi sjötugan í Morgunblaðsgrein að Morgunblaðið væri mikilvægara fyrir Flokkinn en Flokkurnn fyrir Morgunblaðið. Áratugum saman lagði Styrmir aðeins út þær upplýsingar sem hentuðu Flokknum eða matreiddi þær í þágu hagsmuna flokksins.
Ég hef áður vitnað til franska lögfræðingsins og stjórnmálafræðingsins Maurice Duverger sem fyrir hartnær 60 árum gerði fræga rannsókn á stjórnmálaflokkum. Í formála bókar sinnar um stjórnmálaflokkana segir Duverger:
„Tilveran innan flokksins er vísvitandi sveipuð dulúð. Það er ekki auðvelt að afla nákvæmra gagna um stjórnmálaflokka, ekki einu sinni um undirstöðuatriði. Þetta er líkt og að vera ofurseldur frumstæðu regluverki þar sem launung ríkir um lög og helgisiði og hinir innvígðu halda þeim kirfilega leyndum fyrir hinum sem ekki eru innvígðir. Aðeins gamalreyndir varðmenn hafa nauðsynlega vitneskju um hvað er á seyði innan flokksins og um slóttugt leynimakk sem þar fer fram. Þessir menn hafa á hinn bóginn sjaldan til að bera þá vísindalegu hugsun sem gerir þeim kleift að halda nauðsynlegri hlutlægni. Og þeir tala ekki fúslega.“
Mig langar til að deila þessari hugvekju með Styrmi um leið og ég óska honum til hamingju með sinnaskiptin.
Blogg
SINNASKIPTI STYRMIS
05:59 › 20. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
