Mig langar til að spyrja þig Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ofurvarlega einnar spurningar:
Í dag rennur út umsóknarfrestur um starf framkvæmdastjóra fyrir þjóðgarðinn á Þingvöllum. Í auglýsingu eru tilgreindar kröfur um reynslu og menntun eins og vera ber.
Í gær rann út umsóknarfrestur um embætti landlæknis. Í auglýsingu er upptalning á hlutverki embættisins og vísað í kröfur um menntun, reynslu, starfsferil o.frv.
En svo rekst ég á auglýsingu frá þér Katrín um laust starf ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmála. Þar er hvergi minnst á kröfur um reynslu, menntun, starfsferil og annað eins og skylt er samkvæmt reglugerð
(http://www.fjarmalaraduneyti.is/log_og_reglugerdir/reglugerdir/starfsmenn_rikisins/nr/1051 ).
Spurningar mínar eru því eftirfarandi:
Ber ekki að tilgreina kröfurnar í auglýsingu?
Af hverju er það ekki gert?
Vantar nokkuð upp á gagnsæið hér?
Virðingarfyllst,
Jóhann Hauksson
Auglýsingin frá menntamálaráðuneytinu er svofelld:
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Laust er til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Skipað verður í embættið til fimm ára frá og með 1. desember 2009.
Um embættið gilda lög nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands með síðari breytingum og lög nr. 70/1996 um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins með síðari breytingum. Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt
ákvörðun kjararáðs, sbr. lög nr. 47/2006, um kjararáð.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Jónsdóttir skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2009.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil berist mennta- og menningarmálaráðuneyti,
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 3. nóvember 2009.
menntamálaráðuneyti.is




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
