ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

NÖTURLEG ÖRLÖG EIMREIÐARHÓPSINS

13:41 › 19. nóvember 2009

Eitt sinn sagði Hannes Hólmsteinn Gissurarson við mig  eftir spjall í útvarpsþætti mínum Morgunhananum á Útvarpi Sögu veturinn 2006 til 2007, að verðugt væri að rita sögu Eimreiðarhópsins, sem svo mjög hefði sett mark sitt á stjórnmál þjóðarinnar undanfarin 20 ár.


Sjálfur er Hannes Hólmsteinn hluti þessa hóps sem til varð á áttunda áratug síðustu aldar og átti eftir að fylla ákveðið hugmyndafræðilegt tómarúm með nýfrjálshyggju og predika stefnu Reagans og Thatchers.


Hér skal nú gerð grein fyrir stöðu og  örlögum þessara einstaklinga:


Hannes Hólmsteinn Gissurarson:  Dæmdur fyrir brot á höfundarrétti – kennir enn við Háskóla Íslands, en þangað var honum komið inn árið 1988 með járnkarli og kúbeini flokksbræðra sinna í menntamálaráðuneytinu. Settur þar inn fyrir skoðanir sínar en ekki vísindaafrek samkvæmt geinargerð  Birgis Ísleifs Gunnarssonar menntamálaráðherra.


Baldur Guðlaugsson:  Fyrrverandi ráðuneytisstjóri: Hefur stöðu sakbornings, grunaður um innherjasvik er hann seldi bréf sín í Landsbankanum 19. og 22. september  2008, nokkrum dögum fyrir bankahrun, fyrir um 180 milljónir króna.


Davíð Oddsson: Ritstjóri Morgunblaðsins. Rekinn úr stóli seðlabankastjóra. Möguleg lögbrot hans í starfi við yfirtöku Seðlabankans á Glitni til rannsóknar hjá rannsóknarnefnd Alþingis.


Kjartan Gunnarsson: Tapaði milljörðum af ættarauði í bankahruninu. Helsti tengiliður Davíðs Oddssonar við einkavæddan Landsbankann. Eignaðist drjúgan hlut í bankanum þegar hann var einkavæddur og sat í bankaráðinu.  Gæti átt málssókn yfir höfði sér sem bankaráðsmaður og ábyrgðarmaður bankans fyrir bankahrun. Tók að sér ýmis verk í innmúruðum véum Sjálfstæðisflokksins í formannstíð Davíðs Oddssonar.


Friðrik Sophusson: Fékk stöðu forstjóra Landsvirkjunar á silfurfati þegar hann hætti í stjórnmálum.  Lét nýlega af störfum.


Magnús Gunnarsson: Stundar viðskipti á eigin vegum. Varð stjórnarformaður Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar þegar fasteignir þjóðarinnar á herstöðvarsvæðinu (fyrrum eign Bandaríkjahers) voru einkavæddar eftir 2006).  Grunsemdir um spillingu við sölu eignanna hafa ekki verið rannsakaðar. Magnús situr ekki lengur í stjórn KADECO (Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.)


Brynjólfur Bjarnason: Varð forstjóri Símans og síðar Skipta við einkavæðingu. Skuldar nú einn milljarð króna í skúffufyrirtækinu Lamba ehf. sem er til húsa í Arnarnesi, heimili Brynjólfs.


Þorsteinn Pálsson: Nýhættur sem ritstjóri Fréttablaðsins og hefur tekið sæti í viðræðunefnd utanríkisráðherra um aðilld að Evrópusambandinu.


Jón Steinar Gunnlaugsson: Skipaður hæstaréttardómari af flokksbræðrum sínum haustið 2004.  Trúlega vanhæfur til dómarastarfa í fjölda mála vegna skrifa sinna og pólitískra afskipta á árum áður.


Þór Whitehead: Sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands.


Geir H. Haarde:  Bíður niðurstöðu rannsóknarnefndar Alþingis. Hugsanlegt að ábyrgð hans á bankahruninu sem  fyrrverandi forsætisráðherra verði rannsökuð í krafti laga um ráðherraábyrgð og landsdóm frá 1963, eða með öðrum hætti.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?