Sérstakur saksóknari hefur víst fengið eignir Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu kyrrsettar.
Mál hans hefur verið til rannsóknar, fyrst hjá FME, sem síðar sendi það til lögreglurannsóknar. Baldur liggur undir grun um innherjaviðskipti er hann seldi bréf sín í Landsbankanum 19.og 22. september í fyrra, kortéri fyrir bankahrun, en eftir að hafa átt fund um málefni Landsbankans meðal annars við Alasdair Darling fjármálaráðherra Breta snemma sama mánaðar.
Söluverðið var um 180 milljónir króna.
Baldur var ráðuneytisstjóri í mikilvægu ráðuneyti þjóðar.
Baldur varð að vera hafinn yfir allann vafa í störfum sínum.
Sérstakur saksóknari hlýtur að hafa lagalegar og málefnalegar ástæður til að grípa til sinna aðgerða.
Aðgerðin sérstaks saksóknara gegn Baldri mun vekja athygli erlendra fjölmiðla.
Kyrrsetning eigna Baldurs vekur sérstaka athygli vegna þess að hann var ráðuneytisstjóri.
Grunurinn og kyrrsetningin verða tekin sem tákn um spillingu hér á landi, óháð sekt eða sakleysi Baldurs.
Eignir ráðuneytisstjóra kyrrsettar vegna gruns um innherjasvik hljómar í mínum eyrum sem heimsfrétt.
Blogg
FER BALDUR GUÐLAUGSSON Í HEIMSFRÉTTIRNAR?
21:26 › 17. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
