Loksins kemur eitthvað djúpt og bitastætt frá Háskóla Íslands, eitthvað til lausnar vanda þjóðarinnar.
Lesið endilega þennan pistli eftir Doktor Hannes Hólmstein Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor.
Þeir eru áreiðanlega stoltir og ánægðir kollegar hans í Félagsvísindadeild.
Hannes leggur út af þjóðfundinum um helgina:
a) Eftirsóknarverðasta gildi þjóðarinnar er HEIÐARLEIKI.
b) Skoðanakönnun sýnir að þjóðin treystir Davíð Oddssyni best til að leiða þjóðina úr kreppunni.
Já, blasir þá ekki niðurstaðan við?
Málið er að doktor Hannes Hólmsteinn stjórnmálafræðiprófessor sá niðurstöðuna fyrstur. Enda er hann hlutlægur sannleiksleitandi vísindamaður sem Háskóli Íslands er stoltur af.
Blogg
VÍSINDALEG NIÐURSTAÐA HANNESAR
09:54 › 16. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
