Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson blaðamaður hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á DV.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem starfandi blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og DV.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu. Hann hefur einnig starfað sem almannatengill og upplýsingafulltrúi.

ALMENNINGUR Á ALLTAF AÐ BORGA - EINN!

10. nóvember 2009 › 21:44

Ég hlustaði á ræður í upphafi þingfundar á Alþingi í dag.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kom þykkjuþungur í ræðustól og fór með himinskautum um áform ríkisstjórnarinnar um tugmilljarða skattahækkanir.

Nennti ekki að hlusta á þetta en minnir þó að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi einnig farið í pontuna og býsnast yfir niðurdrepandi ríkisstjórninni og væntanlegu skattaböli.

Stóriðjan vill ekki hærri skatta. Stóriðjan vill ekki bera byrðar af bankahruninu.

Samtök atvinnulífsins vilja ekki hærri skatta. Þau vilja ekki bera byrðar vegna bankahrunsins.

LÍÚ vill ekki hærri skatta...

XD vill ekki hærri...

E vill ekki...

O.s.frv.

Allir vilja gott mennta- og heilbrigðiskerfi, góðar samgöngur, góðan lífeyri, góða leikskóla og góðan aðbúnað fyrir aldraða.

Enginn vill borga fyrir þjónustuna.

Sama gamla sagan.

Bjarni og Þorgerður trúa því að með því að lækka skatta fyrirtækja og auðmanna blómstri atvinnulífið og tekjur ríkisins aukist. Hannes Hólmsteinn kemur á hæla þeim geltandi um Laffer-kúrvuna og Friedman og flytur klassískan fyrirlestur repúblíkana í USA um að háflæðið sem fylgi skattleysi ríka fólksins. Það lyfti öllum bátum.

Þau vilja að almúginn borgi fyrir mennta- og heilbrigðiskerfið. Helst einkaskólum og einkaspítölum úr eigin vasa.

Bjarni og Þorgerður tala nákvæmlega eins og þau gerðu fyrir hrun.

Allir vita hvernig fór.

Það er svo spurning um stjórnvisku hvort snjallt sé að skattleggja erlenda fjárfestingu einmitt nú. Engann í heiminum varðar um sjálfsköpuð bágindi Íslendinga. Ekki heldur Rio Tinto eða Alcoa eða hina sem vilja fjárfesta hér. Reyndar er hættan ekki jafn mikil og hræðslubandalagið heldur fram. Raforkan er orðin svo dýr handan hafsins.
Þetta er pólitískt matsatriði og úrlausnarefni.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.