Mér skilst að Lilja Mósesdóttir (VG) hafi skoðað nýja Icesave-samkomulagið og breytta fyrirvara og komist að þeirri köldu niðurstöðu á grundvelli skynseminnar að þessi samningur við nágranna okkar steypti þjóðinni í glötun og því gæti hún ekki samþykkt hann.
Hún ætlar sem sagt að segja Evrópusambandinu, Alþjóðagjaldeyrissjóðinum, Hollendingum, Bretum, Norðurlöndunum, já kapítalismanum öllum, stríð á hendur.
Hún ætlar sem sagt að hrökkva í þjóðernisgírinn með heimastjórnararmi Sjálfstæðisflokksins sem styður sérreignarrétt sægreifanna yfir auðlindunum undan ströndum landsins.
Er Lilja alveg viss um að andúð hennar á ESB, AGS og Samfylkingunni og veiklyndi fyrir einangrunarhyggju og málflutningi þjóðernissinna í Sjálfstæðisflokknum og töframanna í Framsóknarflokknum trufli ekki kalt og skynsamlegt mat hennar?
En hún er víst eitthvað óánægð með Sjálfstæðismenn og telur þá hafa leitt sig í gildru þegar þeir "plötuðu" hana til þess að samþykkja fyrirvarana í sumar en sátu sjálfir hjá. Þannig hafi Sjallarnir dregið úr þunga fyrirvaranna frammi fyrir Hollendingum og Bretum.
Getur einhver útskýrt fyrir mér á hvaða ferðalagi Lilja Mósesdóttir er?
Blogg
Á hvaða ferðalagi er Lilja Mósesdóttir?
17:30 › 1. nóvember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
