Orðið óþrifaverk er samsett úr orðunum óþrif og verk. Menn nota hlífðarföt þegar þeir vinna óþrifaverk segir í orðabók.
Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, notar þetta orð í lítilli frétt í Morgunblaðinu í dag.
Blaðamaður spyr Pál hvort hann hyggist gefa kost á sér til áframhaldandi nefndarsetu og formennsku.
Páll svarar að ljúka þurfi gerð rannsóknarskýrslunnar en segir svo:
„En maður er að allan sólarhringinn; vaknar upp með þetta og sofnar út frá þessu. Þetta er því kannski ekki draumastarfið. Einhver varð þó að taka þetta óþrifaverk að sér, fyrir hönd lands og þjóðar.“
Páll hefur áður boðað að nefndin muni flytja þjóðinni vondar fréttir. Í litlu fréttinni í Mogganum segir hann við blaðamann að skýrslan verði engu að síður fróðleg.
Páli er brugðið.
Hann er eins og eitthvað afsakandi. Eins og hann sé að tala við ritstjóra Morgunblaðsins.
Er hann búinn að fara yfir öll lögbrotin í aðdraganda hrunsins?
Er hann að hugsa um lögbrotin sem framin voru í Seðlabankanum þegar bankarnir hrundu?
Ég bíð spenntur eftir skýrslunni.
Blogg
„Óþrifaverk“
15:10 › 7. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
