ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Er Jón Magnússon alltaf að rekast á eitthvað?

10:23 › 6. október 2009

Jón Magnússon lögfræðingur, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins og nú afturbata sjálfstæðismaður, sendi mér tóninn á Útvarpi Sögu.

Tilefnið var væntanlega pistillinn Á hvaða vegg rakst Jón Magnússon sem ég birti 29. september síðastliðinn.

Verstu ónefnin sem hann velur mér eru leigupenni Baugsmanna og vinstrimaður. Einnig kemur fyrir orðaparið „leigupennar hrunbarónanna“.

Lesendum til fróðleiks er rétt að birta þann hluta úr Sögupistli Jóns sem að þessu snýr:


„Leigupenni Baugs grípur til varna:


Einn helsti leigupenni Baugsveldisins helsta styrktaraðila Samfylkingarinnar, Jóhann Hauksson sem er einn þeirra róttæku svokallaðra vinstri manna sem dyggilega hefur þjónað Baugsauðvaldinu  af meiri auðmýkt en flestir aðrir. Hann hefur harðlega gagnrýnt þá staðhæfingu mína að bankahrunið hér væri fyrst og fremst óábygum bankamönnum og óábyrgum fjárfestum að kenna. Í grein sem hann skrifaði í síðustu viku þar sem hann ræðst á mig persónulega, mótmælir hann þessum staðhæfingum án þess að nefna nokkur haldbær mótrök. Hann reynir hins vegar að rugla umræðuna eins og röklausir menn gera oft með því gera mér upp ástæður þess að bera sannleikanum vitni. Síðan heldur hann fram þeim hefðbundnu staðhæfingum leigupenna hrunbarónanna að hrunið sé að kenna Sjálfstæðisflokknum, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu.


 


Þessar staðhæfingar og rökfærsla leigupenna Baugsveldisins, Jóhanns Haukssonar eru sambærilegar og þegar bílstjóri sem keyrir á húsvegg ber fyrir lögreglu  að lögreglan og Bifreiðaeftirlitið hafi ekki gætt nægjanlega að umferðarörygginu. Þrátt fyrir að hann hefði ekið of hratt og ekki fært bílinn til skoðunar þá væri það samt þessum aðilum að kenna að hann skyldi lenda í því að keyra á.


 


Sambærilegar rökfærslur leigupenna hrunbarónanna hafa komið fram án afláts undanfarið ár. Innihaldsleysi þeirra og fáránleiki kemur betur og betur í ljós eftir því sem frekari upplýsingar berast um  með hvað glórulausa hætti hundraða milljarða hrunbarónarnir fóru fram og sópuðu til sín peningum úr fjármálastofnunum og  áður vel reknum fyrirtækjum sem þeir sölsuðu undir sig.


 


Þar sem mér hefur fram undir þetta líkað vel við Jóhann Hauksson persónulega þá finnst mér það ömurlegt hlutskipti þessa fyrrum róttæka vinstri manns að eyða lunganum af starfsævinni í að vinna fyrir og  reyna að réttlæta óábyrga fjármálastarfsemi óábyrgra umbjóðenda sinna. Hann gæti e.t.v. endað skáldsagnarferil sinn á dagblaðinu sem hann vinnur h já  með því að skrifa bókina “Róttækur vinstri maður til varnar útrásarvíkingum.” “



Þess má geta að Hannes Hólmsteinn Gissurarson kom Jóni til varnar í athugasemdum við pistli mínum um daginn.
Hannes hefur það fram yfir Jón Magnússon, að hann er búinn að bæta eftirfarandi við fyrri skýringar sínar um að allt sé útlendingum að kenna: 

 „ 4) glannaskapur íslenskra bankamanna og útrásarvíkinga að ógleymdri hinu nauðsynlega skilyrði fyrir þessum glannaskap, aðhaldsleysi dómstóla, fjölmiðla (flestra Baugsmiðla), forsetaembættis, fjármálaeftirlits og veikra stjórnmálamanna (eftir 2004). Ísland fór á hvolf eftir 2004; eftir það veitti enginn neina forystu hér.“



Já minn kæri Jón: „Veikir stjórnmálamenn og veikt fjármálaeftirlit.“

Það er nú svo.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?