Þeir sem vilja bæta orðspor Íslendinga meðal nágrannaþjóða ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir ákveða að gera það með því að stíga enn einu sinni ofan á tær þeirra eða gefa þeim puttann og segja: "Við borgum ekki!"
Ég segi enn einu sinni vegna þess að Hollendingar, Þjóðverjar, Bretar, Frakkar og fleiri þjóðir töpuðu þúsundum milljarða króna á hruni íslensku bankanna. Það var fyrsta sjóblauta handklæðið sem Íslendingar slengdu framan í þessar þjóðir fyrir ári. Öðru sinni var það gert þegar kvisaðist að Íslendingar ætluðu ekki einu sinni að borga lágmarksinnistæður sparifjáreigenda að lögum.
Íslendingur, sem segist ekki vilja borga Icesave, gleymir því að til dæmis þýsk stjórnvöld hafa enga ástæðu til þess að hlusta á harðlífisrembing eyjaskeggja sem kostað hafa nokkra þýska banka þúsund milljarða króna. Þetta eru skuldirnar og kröfurnar sem allir gleyma í rifrildinu um Icesave. Þjóðverjar og Hollendingar gleyma ekki þessum áföllum. Sumir hafa misst heimili sín, tapið hefur valdið skilnuðum og veikindum segir í orðsendingu frá talsmönnum kröfuhafa í Hollandi.
Í Hampshire á Bretlandi er barnaspítali sem tapaði öllu sínu í íslenska bankahruninu. Spítalinn rambar á barmi gjaldþrots.Þar liggja langveik og dauðveik börn.
Hafa Bretar ástæðu til þess að strjúka þrasgjörnum íslenskum þverhausum létt á koll og segja góðlátlega við þá: "Þetta er allt í lagi, þið þurfið ekkert að borga"??
Ofstækismenn hér heima telja þá landráðamenn sem voga sér að minnast á hagsmuni annarra en Íslendinga í þessu sambandi. Þeir telja gjaldþrota spítala í Hampshire og brotna Hollendinga stunda fjárkúgun þegar minnst er á að Íslendingum beri að borga sparifjáreigendum í Hollandi og Bretlandi lágmarkstryggingar á sparifé. Ekkert annað!
Skylduboðið skilyrðislausa er svona:
Breyttu þannig að þú getir viljað að regla breytni þinnar verði að almennu lögmáli.
Íslenska vænisýkin er mesta böl þjóðarinnar.
Blogg
Vænisýki heillar þjóðar
22:25 › 5. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
