Borgarahreyfingin, hluti VG og fjöldi kjósenda telur að upp sé runninn tími nýrra og heilbrigðari stjórnmála.
Ég er ekki viss og ekki bjartsýnn.
Flokkar hafa alltaf klofnað vegna málefnaágreinings en einnig vegna glerharðrar samkeppni keppinauta um valdastóla og forystuhlutverk. Járnlögmál fámennisstjórna nær oftast yfirhöndinni.
Gott væri hins vegar ef stjórnmálastéttinni tækist að auka veg löggjafarvaldsins á kostnað framkvæmdavaldsins. Draga úr ráðherraræðinu.
Enn eina ferðina vil ég benda á dæmi um hversu gömul sú hugsun er að spenna geti ríkt milli stjórnmálaflokks og einstakra flokksmanna. Flokkar hafa þó ávallt í hendi sér að skapa lýðræðislegan vettvang til að ræða stefnu og innanflokksátök. Stundum láta þeir það undir höfuð leggjast.
Lítum á það sem Guðmundur Finnbogason sagði í bókinni Stjórnarbót. Hún kom út árið 1924:
“En hvernig sem nú flokkur er til kominn, þá er það eðli hvers flokks að vera stríðandi heild, hópur til sóknar og varnar. Og þar með er fræi illgresisins sáð í þjóðmálaakurinn. Fyrsta skilyrði þess að flokkur verði sigursæll er það, að flokksmennirnir séu samhuga og fylgist vel að málum, að hver maður í flokknum breiði út þær skoðanir er flokkurinn heldur fram og reyni á allan hátt að auka þeim fylgi. Þess vegna verða stjórnmálaskoðanir hvers flokks brátt einskonar trúarbrögð flokksmanna. Það myndast trúarsetningar, sem ætlast er til að allir flokksmenn fylgi og hver sem fer að hugsa sjálfstætt um málin og kemur fram með ágreiningsatriði við skoðanir flokksstjórnarinnar, verður brátt vargur í véum, því hann er hættulegur fyrir samheldnina, dregur úr trúaráhuganum og leysir sundur í stað þess að binda saman. Það eru talin svik við flokkinn að halda fram öðrum skoðunum en þeim sem koma heim og saman við stefnu hans. Þar sem svona er í garðinn búið, þá er ekki von að stjórnmálaflokkar verði neinar gróðrastöðvar frjálsar hugsunar um þjóðmálin og rannsókar á þeim. Aðaláhuginn snýst um það að halda saman, vinna sigur á öðrum flokkum, ná í völd og halda þeim. Þar með verða flokkshagsmunirnir brátt aðalatriðið í baráttunni.”
Blogg
Nýju stjórnmálin eru hundgömul
11:05 › 5. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
