Í alvöru talað:
Var orðræða Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, VG, í Silfri Egils í dag, ekki samfelld árás á Steingrím J. Sigfússon?
Vinnubrögð ríkisstjórnarinnan handónýt sagði hún.
Ögmundur rekinn úr ríkisstjórninni, sagði hún.
Ríkisstjórnin þarf að breyta vinnubrögðum sínum sagði Guðfríður Lilja.
Og svo framvegis.
Hver leiðir ríkisstjórnina auk Jóhönnu Sigurðardóttur?
Hann heitir Steingrímur J. Sigfússon.
Ergo: Steingrímur J. rak Ögmund úr ríkisstjórninni (eða hrakti hann út - skiptir varla miklu máli hvort heldur það er.)
Guðfríður Lilja, Morgunblaðið og stjórnarandstöðuflokkarnir eiga það sameiginlegt um þessar mundir að gera sér sérstakt far um að mæra Ögmundi við þessar aðstæður.
Órólega deildin í VG heldur að hún hafi fundið upp ný stjórnmál og betri en fyrr tíðkuðust.Reyndin er ekkert annað en andóf við Steingrím J. og stjórnarsamstarfið.
Valdið til þingsins segja þau. Aukin einstaklingshyggja á kostnað flokksstjórnmála.
OK.
Í raun er þetta ekkert annað en klofningur innan VG.
Rétt eins og þegar Jóhanna Sigurðardóttir klauf sig um miðjan síðasta áratug út úr Alþýðuflokknum vegna niðurskurðar í velferðarkerfinu og stofnaði Þjóðvaka.
Kannski hef ég rangt fyrir mér.
Held samt ekki.
Blogg
Rekinn
19:43 › 4. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
