ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 5m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Stærsta hneyksli hrunsins er framundan

01:16 › 3. október 2009

Á fimmtudagsmorgni gerði embætti sérstaks saksóknara húsleit hjá útibúum tveggja þekktra endurskoðunarfyrirtækja hér á landi; KPMG og Price Waterhouse Cooper (PWC).
Franskur sérfræðingur á vegum Evu Joly hefur skoðað mat á eignum bankanna fyrir hrun og mat skilanefndanna.

Þar er grunsamlega mikill munur.

Grunurinn sem vaknar er að íslenskir endurskoðendur hafi fegrað stöðu bankanna til mikilla muna vel og lengi og allar götur fram í andlát þeirra fyrir ári.

Hafi íslenskir endurskoðendur tekið þátt í að falsa kerfisbundið tölur um stöðu bankanna undir merkjum KPMG og PWC verður það ekki aðeins hneyksli hér á landi heldur um um allan heim. Þessi virtu fyrirtæki munu bíða álitshnekki og skaði þeirra verður mikill.

Erlendir bankar, sem tapað hafa margfaldri Icesave upphæðinni á viðskiptum við íslensku bankanna munu hefja málarekstur gegn bönkunum, já endurskoðendunum og jafnvel íslenska ríkinu. 

Skandallinn verður jafnvel stærri en þegar Andersen, eitt virtasta endurskoðunarfyrirtæki Bandaríkjanna, féll með Enron orkurisanum. Andersen endurskoðunarfyrirtækið tók þátt í að fela skuldir og falsa stöðu Enron.
Hneykslið vegna Andersen endurskoðunarfyrirtækisins var í rauninni ekki minna en sjálft Enron hneykslið.

Matsfyrirtæki eins og Moodys, Standard & Poor's, allur almenningur og verðbréfamarkaðir um heim allan eiga að geta treyst endurskoðunarfyrirtækjunum og hlutlægni þeirra. Ef ekki þá hrynur verðbréfamarkaðurinn um heim allan. Menn verða að átta sig á því að árshlutauppgjör og ársskýrslur áritaðar af viðurkenndum endurskoðunarfyrirtækjum er hornsteinn viðskiptanna og uppspretta trúverðugleika þeirra.

Fréttir verða sagðar af þessum málum á næstunni. Margt bendir til þess að hér sé í uppsiglingu hneyksli sem sem valda mun íslensku þjóðinni ómældu tjóni og erfiðleikum við að endurheimta traust annarra þjóða.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?