Fyllirí einstaklings
Líkt er farið um íslensku krónuna og drykkjusýki; báðar nærast þær á þeim vandamálum sem þær framleiða sjálfar.
Drykkjusjúklingurinn dettur í það. Á enn einu fyllirínu brýtur hann niður líkamlega heilsu, sálrænan stöðugleika og skemmir félagsleg tengsl sín við sína nánustu og annað fólk. Timburmennirnir felast í skjálfta, svefnleysi, meltingartruflunum, höfuðverk og margvíslegum öðrum líkamlegum einkennum.
Sálrænu afleiðingarnar eru afleitar; kvíði, spenna og sektarkennd uppi við þolmörkin. Félagslegar afleiðingar drykkjunnar eru einnig skelfilegar; svik við börnin og sína nánustu, fjarvera frá vinnu, óstöðugleiki í samskiptum við aðrar. Þeir sem nánastir eru drykkjusjúklingnum læra að búa við ástandið og finna sér leiðir til að gera lífið bærilegra í sambýlinu við drykkjusýkina. Þeir verða meðvirkir sem kallað er. Lygin og réttlætingarnar verða ráðandi í samskiptunum.
Bjögunin í samskiptunum við aðra, laskaður fjárhagur, reiði og sektarkennd verður til þess að drykkjusjúklingurinn grípur til meðala gegn sjúkdómseinkennunum. Hann lýgur og réttlætir gjörðir sínar.
Hann dettur í það!
Vítahringurinn lokast.
Drykkjusýkin nærist á þeim vandamálum sem hún framleiðir sjálf.
Fyllirí þjóðar
Þjóðin slær lán í útlöndum og fer á neyslufyllerí. Hún setur gengi krónunnar í hæstu hæðir og flytur inn varning sem mest hún má. Stoðkerfi efnahagslífsins bognar smám saman undan álaginu. Vaxandi kvíði og óvissa um stöðu mála kallar á réttlætingar og blekkingar. Félagsleg samskipti við aðrar þjóðir fara úr skorðum.
Timburmennirnir eru skelfilegir. Bankakerfið hrynur. Krónan sekkur eins og steinn. Innviðir samfélagsins eru við það að bresta.
Þjóðarvitundin fyllist kvíða, spennu og reiði. Óstöðugleikinn tvístrar hugsuninni og hátterninu.
Samskiptin við aðrar þjóðir fara úr skorðum og einkennast fremur af niðurbroti en uppbyggingu. Vinaþjóðirnar eru reiðar „drykkjusjúklingnum“; hann hefur gengið á hlut þeirra.
Sektarkenndin, reiðin og spennan verður óbærileg. Aðeins er um eitt að ræða.
Að grípa til krónunnar og „detta í það“!
Vellíðanin læsir sig um þjóðarlíkamann þegar krónan tekur að vinna með útflutningsgreinunum. Örbirgð og áfall heimilanna og fyrirtækjanna vegna krónufallsins gleymist. Allt verður eins og á bleiku skýi.
Vítahringurinn lokast.
Þar til...
Krónan nærist á þeim vandamálum sem hún framleiðir sjálf.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
