Maður heitir Ívar Jónsson og er stjórnmálafræðingur.
Hann skrifar grein í Morgunblaðið fyrir helgina (föstudag) um sjáflstæðisbaráttuna fyrr og nú.
Hann fer aftur til greinar í Morgunblaðinu árið 1929 til þess að leita fanga gegn aðild að Evrópusambandinu. Greinin er eftir Jón Þorláksson stofnanda Sjálfstæðisflokksins.
Í þessari 80 ára gömlu grein varar Jón við ásælni Dana; þeir sæti færis að hafa arðinn af fiskimiðunum af íslensku þjóðinni í krafti jafnréttisákvæðis sambandslaganna. Danir glími við atvinnuleysi og muni seilast í auðlindir Íslendinga.
"Verslunarsagan hefir sýnt oss nægilega hvað það kostar, þegar afrakstur veigamikils atvinnuvegar rennur út úr landinu."
Og svo segir Ívar sjálfur eftir langa tilvitnun í Jón Þorláksson: "Það er athyglisvert að með því að taka út úr textanum orðin "Danmörk" og "Danir" og setja inn "Evrópusamband" og "íbúar Evrópusambandsins" sést hversu sígild varnarðarorð fyrsta formanns Sjálfstæðisflokksins eru."
Mér finnst að Ívar ætti að birta þessa grein í Finnlandi og Svíþjóð, svona til að byrja með, og kanna viðbrögð "íbúa Evrópusambandsins" í þessum löndum við ásælni "Evrópusambandsins" í auðlindir Finnlands og Svíþjóðar.
Hvernig skyldi til dæmis Svenson, kjósandi í Gautaborg, taka því þegar "íbúar Evrópusambandsins" fara að seilast í auðlindir hans og sænskrar þjóðar sinnar.
Má ég biðja Ívar stjórnmálafræðing um að útskýra hvað hann vildi segja með grein sinni?
Var hann til dæmis að segja að heimsvaldastefna Samherja og yfirráð útgerðarinnar yfir úthafsveiðikvóta Evrópusambandsins undanfarin 10 til 15 ár sé göfugri en smávægilegar veiðiheimildir Evrópusambandsins innan íslenskrar landhelgi?
Veit hann að sænska orkufyrirtækið Vattenfall (100% eign sænsku þjóðarinnar) sér Þýskalandi fyrir 15 prósentum af raforkuþörfinni í landinu? Veit hann að Berlínarbúar eru algerlega háðir Svíum um rafmagn til að kynda og lýsa upp borgina sína? Líka Varsjárbúar?
Hvað varst þú eiginlega að reyna að segja Ívar? Ertu að vara við einhverri hættu? Hver er hún?
Á þetta að vera eitthvert þjóðernishyggjufóður til að herða Sjálfstæðismenn eða VG í einangrunarhyggju sinni?
Spyr sá sem ekki veit.
Blogg
Hvert er maðurinn eiginlega að fara?
21:47 › 23. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
