Tveimur dögum áður en nýir ritstjórar tóku við Morgunblaðinu, fyrir um mánuði, birti DV fréttaskýringu undir fyrirsögninni Í stríði gegn ríkisstjórninni.
Þarna voru dregin saman ýmis atriði um hremmingar Árvakurs og Morgunblaðsins undanfarið ár. Sagt var frá því hvernig blaðið hefði snemma á árinu komist í hendur nýrra eigenda.
Í úttekt DV var meðal annars þetta að finna:
„Af þessu má ráða að kveikjan að ritstjóraskiptum á Morgunblaðinu er ekki fyrst og fremst rekstrarleg. Hún endurspeglar miklu fremur harðnandi stjórnmálaátök og ríkan vilja á hægrivæng Sjálfstæðisflokksins til þess að ná vopnum eftir bankahrunið og auka áhrif og völd sem kostur er um leið og flokkurinn sætir færis að ná aftur stjórnartaumunum í landinu. Augljóslega er þarna á ferðinni hópur sem harðast vinnur gegn Icesave-ríkisábyrgðinni, aðild að ESB og breytingum á kvótakerfinu. Fyrst og síðast þykir mest um vert að koma núverandi ríkisstjórn frá völdum, koma í veg fyrir pólitískt og hugmyndafræðilegt hámarkstjón flokksins vegna bankahrunsins.“
Mánuðurinn sem liðinn er hefur fært sönnur á flest af því sem þarna var sagt.
Nú vil ég spyrja Óskar Magnússon, útgáfustjóra Morgunblaðsins:
1) Er það rétt munað að sá ritstjórinn sem var í höfuðhlutverki í aðdraganda bankahrunsins yrði ekki látinn fjalla um mál er snerta bankahrunið?
2) Óskar sagði orðrétt í Kastljósþætti 24. september: "Það er lykilatriði hjá Morgunblaðinu og allri okkar framgöngu að tapa ekki því trausti og þeim trúverðugleika sem við höfum hjá þjóðinni..."
Spurt er: Hefur framganga Óskars og eigenda Morgunblaðsins miðað að því að tapa ekki umræddu trausti og trúverðugleika?
3) Í umræddu Kastljósviðtali taldi Óskar það mikinn feng fyrir Morgunblaðið að Davíð Oddsson nýráðinn ritstjóri væri laginn við að draga að sér athygli.
Spurt er: Er Óskar ánægður með þá athygli sem Morgunblaðið hefur fengið undanfarinn mánuð?




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
