Eftirfarandi grein eftir Torgny Nordin birtist í Göteborgs Posten í Svíþjóð í gær:
Alls staðar þessi Davíð Oddsson
Efnahags- og stjórnmálaþróunin á Íslandi undanfarinn aldarfjórðung minnir meira á óreiðuna í bananalýðveldi en ástandið í norrænu velferðarríki. Íslenska samfélagið er sannarlega lýðræðislegt og opið eins og önnur norræn samfélög en undir yfirborðinu eru að verki óheilbrigð kunningjatengsl og ljósfælnar klíkur sem fara með völdin í viðskiptum, fjölmiðlum og stjórnmálum.
Davíð Oddson gegnir þar lykilhlutverki, maður sem algerlega ómögulegt er að horfa framhjá vilji maður öðlast skilningi á íslenskum aðstæðum. Í meira en aldarfjórðung hefur hann haft afgerandi áhrif í landinu.
Halda mætti að Davíð Oddsson sé mjög algengt nafn á Íslandi og að til sé mikill fjöldi Davíða: einn er borgarstjóri í Reykjavík sem stuðlar að því að gera borgina óheflaða með því að leyfa vændi og sleppa jepptröllum á götur borgarinnar; annar er forsætisráðherra sem tekur þátt í því að eyðileggja dýrmætustu staði íslenskrar náttúru; þriðji er utanríkisráðherra sem gerir allt til þess að koma í veg fyrir aðild landsins að ESB; enn einn Davíð er seðlabankastjóri og einn þeirra allra verstu í heimi samkvæmt úttekt alþjóðlegs viðskiptablaðs; annar Davíð er ritstjóri á Morgunblaðinu, áhrifamesta dagblaðsins í landinu.
En þannig er það ekki. Þessir mismunandi Davíðar eru í raun og veru einn og sami maðurinn: Davíð Oddsson, alltaf þessi sami Davíð Oddsson.
Í næst síðustu endurholdgun sinni sem seðlabankastjóri fylgdi Davíð stefnu - með aðstoð vina sinna í Sjálfstæðisflokknum - sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins. Þar eð hrunið leiddi til vandamála sem enn eru óleyst í samskiptum við Hollendinga og Breta eru vanrækslusyndirnar í íslenskri efnahagsstjórn nú orðnar vel þekktar um heim allan.
Þótt svo að kreppan fagni nú eins árs afmæli er það fyrst nú sem Íslendingar finna fyrir henni í alvöru. Áætlað er að meira en helmingur þjóðarinnar ráði ekki við skuldir sínar og upp undir jafn margir eigi við aðsteðjandi vanda að glíma.
Við þessar aðstæður segja nýir eigendur Morgunblaðsins eðalbornum ritstjóra upp störfum ásamt um þrjátíu blaðamönnum. Inn á sviðið gengur Davíð Oddsson! Eins og íslenski blaðamaðurinn Egill Helgason orðar það; „þetta er eins og að gera Nixon að ritstjóra Washington Post í kjölfar Watergatehneykslisins.“
Davíð Oddson hóf feril sinn sem ritstjóri fyrir mánuði og notar nú stöðu sína til að endurrita söguna blygðunarlaust sér í hag. Þetta eru fáránleg staða en lýsandi fyrir aðstæðurnar á hinni fögru eyju sem rís úr Atlantshafinu.
Torgny Nordin




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
