ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Viltu lána manni sem segist ekki borga?

12:10 › 2. október 2009

Ég tek eftir því að fjöldi fólks segir að Icesave-skuldirnar séu skuldir einkafyrirtækis sem honum beri ekki að borga.

Rétt er að Icesave-skuldirnar eru skuldir ríkisins. Skuldirnar urðu til með vitund, vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda. Þau hjálpuðu Landsbankanum að safna sparifé saklausra Hollendinga og Breta fram í rauðann dauðann. Heimsþekkt endurskoðunarfyrirtæki, KPMG og PWC, hjálpuðu til við að blekkja almenning þangað til allt var um seinan. Hjá þeim var gerð húsleit í gær.

Fjármálaeftirlitið er eftirlitsstofnun ríkisins með bönkunum. Það getur aldrei fyrir rétti sagt að PWC og KPMG hafi blekkt sig.
Það væri svipað því að lögreglan héldi því  fram að allir glæpamenn blekktu sig alltaf.
Fjármálaeftirlitið hafði lagaheimildir til þess að setja sitt fólk inn í bankana væri eitthvað grunsamlegt á ferðinni. Gerði FME það? 

Auk þess átti Seðlabankinn alltaf að fylgjast með erlendri skuldastöðu bankanna. Í þágu almennings.

Hollendingar, Bretar, AGS og Norðurlöndin vilja vita hvort íslenska ríkið ætli að borga skuldir sínar eins og gerist og gengur í heimsviðskiptum meðal siðaðra þjóða. Allir vilja vita það fyrir víst áður en þeir lána okkur meira fé.

Eðlilega.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?