ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Syndakvittanir fyrir embættismenn

21:36 › 18. október 2009

Höfundur Reykjavíkurbréfs í Morgunblaðinu hefur sett sig nokkuð inn í málefni Seðlabankans að því er virðist. Honum þykir sem spunameistarar stjórnarliða hafi að undanförnu reynt að koma óorði á Seðlabankann og útlán hans fyrir bankahrun.

Ekki skal lagt mat á það hér hvort "holur hljómur sé í hatursherferðinni" gegn bankanum eins og það er orðað í Reykjavíkurbréfinu.

Höfundur þess heldur því fram að Samfylkingarmenn kenni öðrum en bankamönnum um bankahrunið og vitnar í virtan endurskoðanda og bókhaldsfræðimann, Stefán Svavarsson, máli sínu til framdráttar.

Stefán hafði skrifað eftirfarandi í Mogga nokkru áður: "Í reikningsskilum viðskiptabankanna í árslok 2007 og á miðju árinu 2008 kom fram að afskriftareikningar útlána námu aðeins 1 prósenti af útlánum. Þremur mánuðum síðar sýndist því haldið fram að afskriftareikningur þyrfti að vera 50 prósent eða jafnvel hærri. Hvernig í dauðanum mátti þetta vera?
Það er aldeilis fráleitt að hiksti í endurfjármögnun á hægri hlið efnahagsreiknings leiði sjálfkrafa til þess að eignahliðin hrynji; þar á milli er ekki beint orsakasamband."

Höfundur Reykjavíkurbréfsins spinnur þennan þráð áfram og segir að eftir að bankarnir hafi komist í þrot og ekki var lengur hægt að vera með feluleik og fegrunaraðgerðir og rýnt hafi verið í gögn sem að baki lágu hafi sést að "stór hluti afkomunnar var bara froða".

Og svo er það rúsínan í pylsuendanum: "Það hefur verið ríkur vilji til þess, ekki síst hjá samfylkingarmönnum og spunameisturum þeirra að kenna öðrum um bankahrunið en bankamönnunum sem ábyrgðina báru og eigendum bankanna, sem jafnframt voru stærstu skuldararnir. Jafnvel þeim sem andæfði og vöruðu við er reynt að stilla upp í sökunautaforystu."

Hér er nauðsynlegt að gera tvær alvarlegar athugasemdir:

1) Endurskoðendur virtra fyrirtækja á borð við KPMG og PWC, starfsbræður Stefáns Svavarssonar, skrifa undir og staðfesta uppgjör bankanna og félaga sem þá eiga. Hjá þessum endurskoðunarfyrirtækjum var gerð húsleit um daginn. Hún var gerð vegna þess að grunur hefur vaknað um að virtir starfsbræður Stefáns hjá KPMG og PWC hafi skrifað undir þessa "froðu" í ársreikningum eða árshlutauppgjörum bankanna, hugsanlega gegn betri vitund.

2) Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið hafa lagaskyldu til þess að "rýna í gögn" sem að baki liggja til þess að koma í veg fyrir slys. Í ÞVÍ FELST EFTIRLIT ! - SLÍK RÝNI ER SJÁLFT EFTIRLITIÐ !
Fjármálaeftirlitið hefur til dæmis víðtækar lagaheimildir til þess að fylgjast með bönkunum, setja fólk inn í þá til rannsóknar. Það hefði getað bannað Landsbankanum að stofna útibú í Hollandi ef það hefði haft bein í nefninu.

Af öllu að dæma er höfundur Reykjavíkurbréfsins að bera hönd fyrir höfuð embættismanna og jafnvel stjórnmálamanna sem ábyrgð kunna bera á bankahruninu.
Ég er ekki viss um að rannsóknarnefnd Alþingis sé alveg sammála höfundi Reykjavíkurbréfsins, því hún hefur meðal annars til rannsóknar aðkomu ritstjóra Morgunblaðsins að kaupum ríkisins á 75 prósenta hlut í Glitni og niðurfærslu eignarhluta eigendanna um 88 prósent.
Ég held að höfundur Reykjavíkurbréfsins ætti að ræða nánar við ritstjóra Morgunblaðsins um mögulega ábyrgð seðlabankastjóra og fleiri áður en hann útdeilir syndakvittunum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?