Miklu betur kann ég við hugsjónaeld og prinsippfestu Ívars Páls Jónssonar blaðamanns í frjálshyggjufræðunum heldur en einkennilega og jafnvel hættulega persónudýrkun Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar,á guði sínum Davíð Oddssyni.
Ívar Páll gerir mér grein fyrir ferli sínum og ýmsum sjónarmiðum í tilskrifi á AMX.is fyrir helgina.
Ástæðan voru útleggingar mínar um þann kvitt að Ívar Páll, sonur Jóns Steinars Gunnlaugssonar og bestavinar aðal (DO), væri á leið upp í Hádegismóa til að bæta Mogganum upp atgerfisflóttann þar að undanförnu.
Ég rifjaði sem sagt upp gamla grein eftir Ívar Pál um aðalinn í Sjálfstæðisflokknum og kerfisbundnar embættisveitingar flokksins til manna af réttum ættum og með rétt flokksskírteini.
Það er vel hægt að rökræða grunnhugmyndir frjálshyggjunnar. Ívar Páll er svo prinsíppfastur fylgjandi frjálshyggjunar að hann hefur ekki verið í Sjálfstæðisflokknum síðan árið 2002.
Helsti trúboði frjálshyggjunnar hér á landi fyrr og síðar, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, er hins vegar svo djúpt sokkinn í persónudýrkun að ekki verður lengur rökrætt við hann. Persónudýrkun fellur utan við rökræður og heilbrigða skynsemi. Hún er hjákátleg og spurning hvort hún er ekki farin að há honum í starfi í Háskóla Íslands. Hversu margir sækja kúrsa hjá honum?
Sem dæmi vill Ívar Páll leggja niður Seðlabankann; bankar eigi að kunna fótum sínum forráð sjálfir í samkeppni við aðra banka.
Svona hugmynd má vitanlega ræða.
Sjálfum sér samkvæmur hlýtur ívar Páll að hafa verið á móti fjölmiðlalögum Davíðs Oddssonar eins og faðir hans Jón Steinar Gunnlaugsson.
Jón Steinar skrifaði einskonar "manifesto" um markaðsfrelsið í Morgunblaðið 19. janúar árið 2004, fimm mánuðum áður enn Davíð féll af stalli í fjölmiðlamálinu.
Skyldi Davíð hafa fyrirgefið Jóni Steinari pistilinn?
Yfirlýsing Jóns Steinars í Morgunblaðinum 19, janúar 2004, er svofelld:
"Ég styð frelsið
- Ég styð frelsi í viðskiptum.
- Ég er andvígur ríkisrekstri.
- Ég er andvígur styrkjum ríkisins við atvinnurekstur, ekki síst ef hann er stundaður í samkeppni við aðra sem ekki njóta styrkja.
- Ég er andvígur lagareglum sem gera hlut eins aðila sem stundar samkeppnisrekstur betri en annarra sem við hann keppa.
- Mér finnst það vera jákvætt ef framtakssamir einstaklingar verða ríkir meðal annars vegna þess að þeir eru líklegir til að nýta hagnað sinn til áframhaldandi uppbyggingar.
- Mér finnst það vera jákvætt ef íslensk fyrirtæki verða stór og öflug, m.a. til að geta stundað samkeppni við erlend fyrirtæki hér á landi og erlendis.
- Ég er á móti löggjöf sem bannar sama manni (eða mönnum) að eiga mörg fyrirtæki, hvort sem þau fást við rekstur fjölmiðla eða stunda aðra starfsemi.
- Ég vil að aðgangur nýrra fyrirtækja til að hefja starfsemi á markaði, m.a. til að keppa við þá sem fyrir eru, sé frjáls.
- Ég er andvígur háum sköttum en tel samt að háir skattar réttlæti ekki skattsvik.
- Ég er hlynntur öruggri og skjótvirkri réttarvörslu gagnvart þeim sem svíkja undan skatti.
- Ég er hlynntur öruggri og skjótvirkri réttarvörslu gagnvart þeim sem brjóta gegn samborgurum sínum í viðskiptum.
- Ég er hlynntur því að styrkja yfirvöld til rannsókna á meintum afbrotum í viðskiptalífinu, bæði vegna hagsmuna þeirra sem fyrir sökum eru hafðir en líka vegna hagsmuna þjóðfélagsins af að stöðva starfsemi sem ekki hlítir lögum.
- Ég styð Sjálfstæðisflokkinn."
Heiðarlegar játningar hæstaréttardómarans, ekki satt?
En leyfist mér að bera upp ofurlitlu efasemd um það hvort Jón Steinar hafi ekki með stefnuyfirlýsingu sinni bakað sér allsherjar vanhæfi sem hæstaréttardómari?
Blogg
Sjúkleg persónudýrkun
11:00 › 18. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
