Fuglahvíslari á AMX-vefnum, þar sem blekbyttum ystahægrisins er velt yfir blaðsíðurnar, telur að ég leggi stund á að endurrita söguna.
Þetta er hárrétt athugasemd hjá fuglahvíslara: Fortíðin er nefnilega alltaf til endurmats og þar af leiðandi til endurritunar. Nútíðin á til að taka upp ný sjónarhorn á "veruleika" fortíðarinnar og endurrita hann. Til dæmis út frá sjónarmiðum um stöðu kynjanna eða fátæklinga á fyrri tíð sem sannarlega rituðu ekki söguna af sinni bæjarhellu.
Komist til dæmis dómstólar að því að Baldur Guðlaugsson hafi gerst brotlegur við lög þegar hann seldi bréf sín í Landsbankanum fimm mínútum fyrir bankahrun - og komist rannsóknarnefnd Alþingis að til dæmis að því að Davíð Oddsson og Björgvin G. Sigurðsson hafi sýnt vítavert gáleysi og ógnað efnahagslegu öryggi þjóðarinnar með athæfi sínu fyrir bankahrun og í hruninu sjálfu - verður að endurrita söguna. Ekki mega þeir vera hvítþvegnir sakleysingjar eftir það. Þyrfti sagnfræðin ekki að færa slík ný sannindi til bókar?
Um tæknileg vandamál við að saksækja og sekta þá sem fara ofan í vasa almennings með ólöglegu verðsamráði nenni ég ekki að ræða við AMX og fuglahvíslara þar á bæ. Samkeppnisstofnun hafði vald til að beita stjórnsýslusektum. Hlaut það ekki að byggjast á rannsókn og niðurstöðu?
Ég læt þess einnig getið að í fréttaskýringu DV fyrir helgi um eftirlisstofnanir sem brugðust er hvergi sagt að fjársvelti Samkeppnistofnunar hafi dregið úr getu hennar til þess að stöðva samruna 10 - 11 við Baug á sínum tíma. Aðeins er gefið til kynna að sú staðreynd að stofnunin kom ekki í veg fyrir kaup Baugs á 10 - 11 hafi hugsanlega bakað henni óvild stjórnarherrans sem var í heilögu stríð gegn Baugi.
Annars leiðist mér að tala við nafnleysingja eins og Óla Björn Kárason á vefnum. Því talar hann ekki við mig undir nafni?
Er það af því að hann skammast sín fyrir það sem hann skrifar?
Blogg
Blekbytturnar á AMX velta um koll
07:55 › 18. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
