ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Sonur hæstaréttardómarans á Moggann?

23:13 › 16. október 2009

Ég sé í Sandkorni að líklega gerist Ívar Páll Jónsson, sonur Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttardómara, blaðamaður á Mogga eftir miklar blóðtökur sem blaðið hefur mátt þola að undanförnu.


Ívar Páll Jónsson er vel að sér um forréttindastéttina sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur úthlutað  háum embættum fyrir reikning almennings á undanförnum áratugum.

Ívar Páll ritaði fróðlega grein í Morgunblaðið 25. janúar 2008, liðlega mánuði eftir að Árni Mathiesen, þáverandi fjármálaráðherra hafði skipað Þorstein, son Davíðs Oddssonar, í embætti héraðsdómara. Greininni var ætlað að styðja embættisveitingu Árna Mathiesens.

Saman tekið má hafa efirfarandi fróðleik úr grein Ívars Páls:

1) Sjálfstæðismaðurinn Árni Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra og staðgengill flokksbróður síns Björns Bjarnasonar þáverandi dómsmálaráðherra skipar Þorstein Davíðsson í stöðu héraðsdómara.


2) Þorsteinn Davíðsson er sonur Davíðs Oddssonar, fyrrum formanns Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra, síðar seðlabankastjóra og nú ritstjóra Morgunblaðsins.


3) Umsækjendur, sem metnir voru mun hæfari en Þorsteinn, gerðu formlegar athugasemdir og skutu máli sínu til umboðsmanns Alþingis.
Pétur Kr. Hafstein, Sjálfstæðisflokki og formaður dómnefndar sem metur hæfni umsækjendanna, gerði formlegar athugasemdir við stöðuveitinguna.  


4) Pétur Kr. er sonur Jóhanns Hafstein, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og ráðherra.


5) Ívar Páll Jónsson, Sjálfstæðisflokki og einn af útvörðum ungra frjálshyggjumanna, sagði frá því í greininni hvernig dómsmálaráðherrann Friðjón Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, skipaði formannssoninn Pétur Kr. Hafstein sýslumann í Ísafjarðarsýslu 1983 og tók hann fram yfir reyndari umsækjendur.


6) Ívar Páll greindi loks frá því hvernig Þorsteinn Pálsson, Sjálfstæðisflokki, skipaði Pétur Kr. hæstaréttardómara árið 1991.


7) Ívar Pál ber að skilja á þann veg að þar hafi Þorsteinn Pálsson verið að umbuna Pétri Kr. og þakka honum stuðninginn við sig gegn Davíð í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins árið 1991.


Lýkur þar tilvitnun í grein Ívars Páls og túlkun hennar.
En við hana má bæta eftirfarandi:


9) Geir H. Haarde, Sjálfstæðisflokki og fyrrverandi forsætisráðherra, skipaði Jón Steinar, góðvin Davíðs Oddssonar og föður Ívars Páls, í embætti hæstaréttardómara 29. september árið 2004 en Geir var þá fjármálaráðherra.
Grunsemdir um að Jón Steinar hafi verið ráðinn á forsendum klíkuskapar og flokkshollustu munu um langa hríð loða við hann með réttu eða röngu. Það á líka við um Ólaf Börk Þorvaldsson, frænda Davíðs Oddssonar, sem Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, skipaði hæstaréttardómara 1. september 2003. Ákvörðun Björns þótti geðþóttaleg og sætti gagnrýni. Einn umsækjendanna, Hjördís Hákonardóttir, skaut málinu til kærunefndar um jafnréttismál. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Björn Bjarnason hefði brotið jafnréttislög með því að skipa Ólaf Börk. Í raun varð ríkið að greiða Hjördísi bætur fyrir embættisglöp Björns með því að semja við hana um ársleyfi á launum síðla árs 2005. Vorið 2006 neyddist Björn til þess að víkja sæti þegar Hjördís sótti enn á ný um embætti hæstaréttardómara. Í það skipti kom í hlut Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra, að skipa Hjördísi í embætti dómara við hæstarétt.

Ég þakka Ívari Páli fyrir upplýsingarnar. Ég sé hann fyrir mér ræða þessi mál við Davíð Oddsson upp í Hádegismóum von bráðar.

Svo er nú það.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?