ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Kveðja til dugandi blaðamanna

15:37 › 16. október 2009

Þegar framsæknu blaðamennirnir Magnús Halldórsson, Þórður Snær Júlíusson og Þorbjörn Þórðarson ákváðu í vikunni að yfirgefa Morgunblaðið höfðu þeir áreiðanlega íhugað boðorð blaðamennskunnar sem mótast hafa um áratuga skeið aftur á nítjándu öld.

Jónas Kristjánsson hefur þær yfir á vef sínum en þær eru nú til eftirfarandi búningi:

1. Blaðamennska veitir fólki upplýsingar, sem gera það frjálst.
2. Skuldbinding hennar er fyrst og fremst við sannleikann.
3. Hollusta hennar er við borgarana.
4. Eðli hennar er leit að staðfestingum.
5. Hún er sjálfstæð gagnvart þeim, sem fjallað er um.
6. Hún er óháður vaktari valdsins.
7. Hún er torg gagnrýni og málamiðlana.
8. Hún reynir að gera það mikilvæga áhugavert og viðeigandi.
9. Hún er víðtæk og í réttum hlutföllum.
10. Hún má beita eigin samvisku.

Það er gott að vera sáttur við samvisku sína og sannfæringu.

Trúnaður Magnúsar, Þórðar Snæs og Þorbjarnar við ofangreind boðorð gerir þá að betri mönnum.

Ég óska þeim velfarnaðar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?