ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Að knésetja heimskapítalismann

12:14 › 10. október 2009

Sjálfstæðisflokkurinn ætlar nú að knésetja heimskapítalismann; AGS, ESB, og gömlu nýlenduþjóðirnar, Hollendinga og Breta með liðsinni Ögmundar Jónassonar og fleiri sem hyggja á heimsbyltingu til þess að rétta hlut Íslendinga eftir efnahagshrun sem þeir sjálfir gengust hjálparlaust fyrir. 

Til að rétta hlut Íslendinga, sýna umheiminum að þeir standi í lappirnar, er réttast að velta heimskapítalismanum, segja þeir. Samþykkjum ekkert, Rekum AGS á dyr, Borgum ekki, Tefjum, tökum okkur meiri tíma. Sínum þessum fávitum handan hafsins í tvo heimana.
 
Undirleikurinn kemur ofan úr Hádegismóum sem sakar ríkisstjórnina um pukur. Þar situr maðurinn sem er höfundur möntrunnar sem Ögmundur kyrjar ásamt Bjarna Ben, Sigmundi Davíð og fleirum: Við ætlum ekki að borga skuldir óreiðumanna. ! ??? !!

Var það ekki einmitt pukur og leynimakk innvígðra og innmúraðra í gömlu valdstjórnarkerfi Sjálfstæðisflokksins varð þjóðinni að falli? Málflutningur þeirra nú bendir til þess að almenningur eigi að bera þungann af falli íslensku pilsfatakapítalistanna sem tóku ákvarðanir sínar í innmúruðum launhelgum Flokksins.

Þeir pukruðust með mikilvægar upplýsingar um ógnvænlega stöðu Landsbankans síðastliðið ár. Þar til allt féll.

Nýja Ísland átti að taka á þessari spillingu og launung.

Forsætisráðherra brást því hratt við og birti skýrslu frá Seðlabankanum um afleitar efnahagshorfur ef ekki verði gengið frá Icesave samningunum nú þegar.

Hvað hefðu lýðskrumararnir sagt ef Jóhanna Sigurðardóttir hefði birt upplýsingar Seðlabankans efti viku, tvær vikur?

Pukur!  Svik! , hefðu menn sagt.

Þjóðin lét Ögmund hafa heilt sumar í að ráða með lýðræðislegum hætti fram úr Icesave. Nú vill hann enn halda áfram og veifar lýðræðisástinni. Hann ætlar að láta Samfylkinguna sprengja svo hann verði ekki sakaður um að hafa gert það.
Formaður Sjálfstæðisflokksins klappar honum á öxlina og segir: "Takk fyrir, einmitt það sem ég þurfti til að bjarga pólitískri framtíð minni. Við þurfum að komast í stjórn til að bjarga fyrirtækjunum og stórlöxunum í flokknum."

Hvar misstir Ögmundur fókusinn?  Hvenær fór hann á taugum?

Á meðan ferðast formaður Framsóknarflokksins með bindi og stresstösku um Noreg ásamt vogunarsjóðsmönnum og biður um erlend lán sem hann talar gegn á Alþingi?

Stoltenberg forsætisráðherra kemur fram og segir að allt sé við það sama; Lán séu aðeins veitt óreiðumönnum gegn skilyrðum.

Á fimmtándu öld börðust fátækir verkamenn í Hollandi gegn tækninýjungum frumkapítalismans með því að setja tréklossana sína í tannhjól spunavélanna í verksmiðum kapítalistanna.
Tréklossarnir bera heitið sabot sem er franskt orð að uppruna.Af því er dregið orðið sabotage, sem þýðir skemmdarverk og  orðið saboteur eða saboter sem merkir skemmdaverkamaður.

Vera má að fátækir hollenskir verkamenn hafi með athæfi sínu bætt kjör sín í sumum tilvikum. En svo
mikið er víst að hollensku tréklossarnir stöðvuðu ekki framgang kapítalismans í veröldinni.

Einhver mundi sjálfsagt vilja kalla Ögmund, Sigmund Davíð, Bjarna Ben og fleiri sabotöra eða skemmdarverkamenn.

En það eru ekki mín orð.

Komdu niður á jörðina Ögmundur og gerðu þig skiljanlegan. Í viðleitni þinni til að skilja hvað um er að vera á Íslandi er ég hættur að skilja þig!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?