ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Veikur flokkur brotnar undan álagi

00:54 › 1. október 2009


Það er eitthvað óskiljanlegt, eitthvað þversagnarkennt og einkennilegt við afsögn Ögmundar Jónassonar.

Ef hann hefur vikið úr ríkisstjórn vegna kröfu um að allir ráðherrar gangi í takt í Icesave-málinu, þá styður hann greinilega ekki þær breytingar sem ríkisstjórnin telur sig þurfa að gera á fyrirvörum þeim sem Alþingi samþykkti í sumar. Samfylkingin hefur sett þrýsting á VG og sagt að líf ríkisstjórnarinnar sé í húfi.
Innviðir VG eru ekki styrkari en svo að flokkurinn er við það að klofna undan slíkum þrýstingi.

Ögmundur kemur fram í fjölmiðlum og segist hafa tekið pokann sinn og gengið út úr ríkisstjórninni með tólin sem ríkisstjórnin ætlaði að kála sér með. Og þar með bjargað lífi hennar.

Síðan segist hann styðja ríkisstjórnina heils hugar.

Ef svo, því gat hann ekki gert það sem ráðherra? Er það vegna þess að hann ætlar ekki að styðja ríkisstjórnina sem þingmaður þegar á reynir í Icesave málinu?

Mætti hann nokkuð á neyðarfund þingflokks VG í nótt þar sem reyna á til þrautar að tryggja stuðning við Icesave tillögu stjórnarflokkanna áður en þing kemur saman? Er það ekki tákn um að hann ætlar ekki og getur ekki stutt ríkisstjórnina þegar á reynir?

Ögmundur veit áreiðanlega að þeir stjórnmálaflokkar sem búa yfir besta skipulaginu og hafa mestu skerpuna og marksæknina eru jafnframt þeir flokkar sem venjulega ná undirtökunum þegar á reynir.
Í hernaði vinna þeir sem búa yfir þróuðu skipulagi. Skipulag er píramíðalagað, ólýðræðislegt og tyllir undir elítisma. En það nær árangri og þess vegna meðal annars hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið við völd 80 prósent tímans frá stofnun lýðveldisins.

VG er vanþroskaður flokkur með tvístrað skipulag og margradda kóra. Sumir leika eftir áðurgreindu skipulagi, aðrir aðhyllast eitthvert annað skipulag. Þetta eru innanflokksvandamál sem hefta hraðan framgang mála í þágu þjóðarinnar þegar mest á reynir.

Þetta reynslu- og agaleysi er þess valdandi að nú þarf þingflokkurinn að sitja næturfund til að reyna að berja saman stuðning við stórmál sem ráðið getur úrslitum um líf ríkisstjórnarinnar.

Styður Ögmundur ríkisstjórn sem hann er í þann mund að fella?
Finnst honum betra að fara í stórfelldan niðurskurð upp á eigin spýtur frekar en undir handleiðslu AGS?

Tækifæri Ögmundar til að verja velferðarþjóðfélagið, sem honum er svo annt um, byggist á vilja hans til að tjalda lengur en til einnar nætur í samstarfi við Samfylkinguna.
Ætlar hann nú að glutra niður sögulegasta tækifæri vinstrimanna á lýðveldistímanum til að móta framtíðina?

Sannar ekki háttalag Ögmundar - og nokkurra annarra þingmanna VG - þá kenningu hægrimanna að vinstrimönnum sé ekki treystandi til þess að stýra landinu?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?