ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Tökum Evu Joly til fyrirmyndar

17:16 › 1. október 2009


Árið 1994 var Eva Joly fengin til þess að rannsaka meintar og óeðlilegar peningagreiðslur inn í fyrirtæki Elf olíurisans í eigu franska ríkisins, nánar til tekið til vefnaðarfyrirtækja félagsins. Evu tókst að afhjúpa umfangsmikinn spillingarvef sem bæði stjórnmálamenn og forstjórar voru flæktir í.


Málið var afar umfangsmikið og viðskiptatengslin reyndust gríðarlega flókin. Eva einbeitti sér að leynilegum peningagreiðslum til stjórnmálaflokka í Frakklandi sem og utan landsteinanna og hundruð milljóna evra sem notaðar voru í mútugreiðslur til stjórnmálamanna, kaupsýslumanna og ýmissa milliliða.


Meðal þeirra sem sættu rannsókn hjá Joly og hennar fólki voru Dominique Strauss-Kahn, núverandi forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,  (sem þá var iðnaðarráðaherra í Frakklandi) og Roland Dumas þáverandi utanríkisráðherra og forseti franska stjórnarskrárráðsins. Málið gegn Strauss-Kahn var fellt niður en Dumas var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi, þar af voru tvö ár skilorðsbundin.


Því er þetta rakið hér?


Með öllu er óhugsandi að nokkur tengsl; kunningjatengsl, ættarvens, viðskiptatengsl, gjafatengsl eða aðrar skuldbindingar hafi tengt Evu Joly við Roland Dumas fyrrverandi utanríkisráðherra Frakklands þegar hún rannsakaði mál hans og fékk hann dæmdan.


Algerlega óhugsandi! Vanhæfið hefði þótt augljóst og aldrei komið til álita slík tengsl fengju að þvælast eitt augnablik fyrir rannsókninni.


Hvernig skyldi þessu vera háttað hér á landi með sérstakan saksóknara eða rannsóknarnefnd Alþingis og mögulega brotamenn sem hún þarf að yfirheyra?


 


 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?