Ríkisstjórnin tapar slagnum. Æ fleiri líta á þingkosningar sem eðlilegan þátt í uppgjöri við fortíðina. Meira að segja fyrrverandi forsvarsmenn bankanna og eigendur þeirra sýna meiri ábyrgð og greindarmerki en slímseturáðherrarnir. Einn þeirra hefur meira að segja skilað hluta af ofurlaunum sínum. Ábyrgðin er fólgin í því að standa upp og viðurkenna.
Geir H. Haarde veit ekkert í hvorn fótinn hann á að stíga. Hann ver ennþá aðalhönnuð Davíðshrunsins, sjálfan Davíð Oddsson. Tvísýnt er um ESB niðurstöðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í lok mánaðarins. Þjóðernissinnar og hatursmenn nánara samstarfs við ESB innan flokksins rísa upp. Þingkosningar henta ekki Sjálfstæðisflokknum á næstu mánuðum. Þingmenn og ráðherrar flokksins nenna ekki að standa reikningskil gjörða sinna frammi fyrir kjósendum. Þingsætin eru í of mikilli hættu miðað við fylgiskannanir.
Eins og bent hefur verið á er engin hefð fyrir því í íslenskum stjórnmálum að ráðherrar axli pólitíska ábyrgð og segi af sér eins og tíðkast í nágrannalöndum. Íslenska ráðherraræðið hefur löngu ákveðið að nægjanlegt sé að axla slíka ábyrgð í þingkosningum. Þar kveði kjósendur upp sinn dóm.
Það er því hrein valdníðsla að ætla sér – ofan á slímsetu ráðherranna – að slá þingkosningum einnig á frest.
Eina ástæða Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur fyrir því að slíta ekki stjórnarsamstarfinu strax eftir bankahrunið var sú að hún eygði möguleika á að sveigja Sjálfstæðisflokkinn í átt að Evrópu. Það var eina ástæðan! En það er ekki öllu fórnandi fyrir vilja Sjálfstæðisflokksins í þeim efnum. Hann verður að fá að breytast í lítinn hægrisinnaðan þjóðræknis- og einangrunarflokk í friði ef heimastjórnararmurinn nær yfirhöndinni.
Frumskylda hvers þjóðríkis er að sjá fyrir öryggi borgara sinna. Það hlutverk er hornsteinn sjálfstæðis og fullveldis. Þetta á líka við um efnahagslegt öryggi.
Stjórnvöld brugðust. Bankakerfið féll á þeirra vakt. Davíðshrunið varð á vakt Geirs og Ingibjargar Sólrúnar. Efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar er nú að hluta til í höndum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Ingibjörg Sólrún ber ábyrgð á því að ekki er farið að lofta út í stjórnmálunum líkt og útrásarvíkingarnir eru þegar farnir að gera sjálfir.
Hún ætti að sjá merkin. Guðmundur Steingrímsson er farinn.
Hver yfirgefur Samfylkinguna næst?




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
