ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Sigurður Kári óttasleginn

13:12 › 29. janúar 2009

Efirfarandi rakst ég á í fréttum á visi.is:

"Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, óttast að Vinstri grænir breyti stefnu sinni í Evrópumálum þegar flokkurinn myndar ríkisstjórn með Samfylkingunni.

,,Ég óttast að mínir gömlu vopnabræður, Steingrímur J., Ögmundur og Vinstri grænir muni leggjast flatir fyrir kröfum Samfylkingarinnar í Evrópumálum og jafnvel taka upp stefnu samstarfsflokksins," segir Sigurður á vefsíðu sinni."

Það var og.

Þá vitum við hvaða straumar slitu ríkisstjórn Geirs H. Haarde.

Sigurður Kári hlýtur samkvæmt þessu að hafa fagnað því með sjálfum sér að þurfa ekki að takast á við Evrópusinna í eigin flokki á landsfundi sem forysta flokksins sló á frest.

Sigurður Kári hlýtur að vera logandi hræddur við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, Guðfinnu Bjarnadóttur, Vilhjálm Egilsson, Benedikt Jóhannesson, Illuga Gunnarsson og fjöldann allan af  liðsmönnum í eigin flokki jafnt sem stuðningsmönnum Flokksins í ráðandi stöðum um allt þjóðfélagið sem hver um annan þveran styður aðildarumsókn að ESB.

Kannski tengjast vonbrigði Sigurðar Kára því að hann hafi hugsað sér að ganga í VG ef landsfundurinn hefði samþykkt aðildarumsókn að ESB.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?