ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Gott fordæmi

08:33 › 27. janúar 2009

Björgvin G. Sigurðsson ruddi brautina til nýrra tíma í íslenskum stjórnmálum er hann sagði af sér embætti viðskiptaráðherra.
Björgvin axlaði ábyrgð og tók með sér stjórn Fjármálaeftirlitsins og forstjóra þess.
Þess vegna á hann afturkvæmt í íslensk stjórnmál.

Lítum til dæmis til Svíþjóðar. Mona Sahlin var aðstoðarforsætisráðherra Ingvars Carlsson árið 1995 þegar dagblaðið Expressen upplýsti að hún hefði keypt Toblerone og bleiur með því að nota opinbert greiðslukort.
Mona sagði af sér í október það ár.
Hún er nú formaður sænska Sósíaldemókrataflokksins og líklegur forsætisráðerra eftir kosningarnar í landinu á næsta ári.
 
Ritt Bjærregård, sagði af sér ráðherraembætti eftir að hafa misnotað opinbert fé í veisluhöldum í tengslum við UNESCO-fund í París. Hún átti afturkvæmt í dönsk stjórnmál og varð meðal annars borgarstjóri í Kaupmannahöfn.

Svona mætti áfram telja.

Hann hefur gefið gott fordæmi. Hann vísar okkur veginn inn í verðleikaþjóðfélagið.

Kjósendur bjóða Björgvin velkominn aftur í stjórnmálin í kosningum í vor vegna þess að hann er maður sem axlar ábyrgð.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?