ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Skugginn yfir valdaflokknum

23:34 › 22. janúar 2009

Skuggi hvílir yfir landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst eftir rétta viku í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Skuggi átján ára stjórnartíðar flokksins sem endaði með Davíðshruninu mikla í byrjun október í fyrra.


Formaðurinn, Geir H. Haarde mætir hokinn með bankahrun og klofna ríkissjórn á bakinu. Hvað getur hann gert?  Er gjaldið fyrir að vera önnur átján ár við völd að ganga í Evrópusambandið?


Menn sjá fyrir sér flokksforingjana reyna að róa fjöldann. Sumir fulltrúanna eru að sligast undan húsnæðisskuldum. Aðrir misstu 10 milljóna króna Range-Roverinn undir hamarinn sem þeir héldu að Flokkurinn hefði útvegað þeim í tímalausu góðæri þar sem enginn erfiður morgundagur rennur upp.


Einar K. Guðfinnsson stingur 30 þúsund tonna þorskdúsu upp í kvótaaðalinn, dyggasta sérhagsmunahóp flokksins, um leið og hann segir þeim að hann verði að sækja um aðild að ESB. Þeir róast um stund. Á vefsíðu flokksins birtist mynd af brosandi Einari K. sem údeilt hefur gæðum hafsins til skuldugra stuðningsmanna.


Brosað í táradal
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, snuprar Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi, og bannar honum að handtaka 370 skuldsetta Sunnlendinga. Á vefsíðu flokksins birtist mynd af brosandi Birni. Undir myndinni segir að sýslumaðurinn ætli að endurskoða ákvörðun sína í kjölfar tilmæla brosandi ráðherrans. Ekkert er sagt frá þeim viðbárum sýslumannsins að fjárnámskröfur hafi hlaðist upp; október, nóvember, desember, já og hálfur janúar leið án þess að minnsta lífsmark sæist með ríkisstjórninni varðandi frumvarp um greiðsluaðlögun. Hvað átti sýslumaðurinn að gera? Varð hann ekki að fara að lögum?


Árni Mathiesen birtist brosandi á vefsíðu Flokksins og segir frá því að viðskiptaafgangur þjóðarbúsins verði liðlega 6 prósent á þessu ári. Á myndinni brosir Árni breitt, en segir ekki frá því að atvinnulausir verði 20 þúsund í lok ársins og að einkaneysla dragist saman um fjórðung. Hvað segja kaupmennirnir á landsfundinum sem héldu að Flokkurinn hefði tryggt þeim eilífðar gósentíð?


Árni brosir breitt framan í lesendur vefsíðunnar en segir ekki frá því að hann ætli að  hundsa landslög og ráða Davíðssyni í dómskerfið eins og honum sýnist þrátt fyrir eitthvert álit umboðsmanns Alþingis sem jafnan sé með derring í þágu kjósenda og heimtar að farið sé eftir reglum sem Árni og aðrir ráðherrar hafi sett sjálfir í gegn um tíðina. Árni brosir eins og sá sem valdið hefur og ætlar ekki að segja af sér.


Fúnir innviðir
Sumir þeirra sem sitja landsfundinn áttu vini á réttum stöðum á upphafsdögum bankahrunsins. Þeir fengu skilaboð á laun innan úr klíkuþjóðfélaginu og seldu hluti sína í tæka tíð. Aðrir á fundinum töpuðu miklu fé og eru reiðir. Hugmyndafræði þeirra og lífssýn snýst um budduna. Tæmist hún tæmist gleðibrunnurinn einnig og reiðin tekur völdin. Hvað varðar þá um ESB og brölt Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur við að skapa sér háan sess í sögunni með því að véla heilagan Sjálfstæðisflokkinn til lags við sig og samþykkja aðild að Evrópusambandinu?


Hvað gerir landsfundur Sjáflstæðisflokksins við formann með maðkaða frjálshyggjustefnu Flokksins í rúst, hrunið bankakerfi og klofna ríkisstjórn? Mun fundurinn varpa honum á dyr og grípa til endurnýjunar? Dugar að dusta ryk af Engeyjarætt með fortíð og rætur í seigfljótandi valdakerfi flokksins?


Fyrir utan Laugardalshöllina 29. janúar sjá menn fyrir sér reiða mótmælendur. Sumum þeirra finnst bera vel í veiði að forkólfar spillingarliðsins skuli koma saman á sömu þúfunni. Nú skuli þeim kennt að bera ábyrgð á gjörðum sínum.


Þá mun Björn birtast brosandi á vefsíðu flokksins á nýjan leik og segja, að allt verði í himna lagi. Hann hafi skipað sérsveitum lögreglunnar að verja öryggi og völd landsfundarfulltrúa og flokksins, nú sem endranær. Þeir sem brjóti lög verði dregnir fyrir Harald Johannessen.


Menn sjá fyrir sér Hannes Hólmstein, hugmyndafræðing, gægjast upp á milli Geirs og Björns og hrópa að mótmælendum líkt og Margaret Thatcher, átrúnaðargoð frjálshyggjunnar,  gerði á sínum tíma þegar fátæklingar í Brixtonhverfinu  í London risu upp gegn misrétti og óeirðir brutust út árið 1981: „Crime is a crime.. is a crime.. is a crime...“

(Birt í DV 22. janúar. 2009)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?