Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við virðulegan Háskóla Íslands, ritar stutta grein í fyrsta tölublað The Reykjavík Grapevine á þessu ári og rekur þar orsakir kreppunnar á vísindalegan hátt. Hann segir meðal annars: "Við byggðum eitt ríkasta land í heimi þegar litið er til þjóðartekna á mann. Lífskjör okkar voru með því besta á mælikvarða Sameinuðu þjóðanna. Allt þetta var lagt í rúst af þremur samverkandi þáttum samtímis: alþjóðlegri fjármálakreppu, skekkju í regluverki EES samningsins, sem gat ekki staðið undir fullnægjandi þjónustu við seðlabanka yfir landamæri, og loks villimannslegu áhlaupi breskra yfirvalda gagnvart íslensku bönkunum í byrjun október."
Hvergi er minnist háskólaprófessorinn á mögulegar rætur kreppunnar innanlands. Hvergi er minnst á hlutverk stjórnvalda og inlendra eftirlitsstofnana með vexti fjármálafyrirtækja. Hvergi er minnst á stjórnarstefnu undanfarinna ára.
Allt er öðrum að kenna. Prófessorinn talar eins og drykkjusjúklingur í afneitun sem segir: "Konan er vond við mig, börnin tala ekki við mig eða eru með heimtufrekju og kaupið er lágt. Auk þess er veðrið vont og ríkisstjórnin að hækka skatta. Þess vegna er ekkert um annað að ræða en að detta í það."
Ég bíð eftir því að stofnuð verði samtök frjálshyggjumanna á snúrunni, einskonar AA-samtök frjálshyggjumanna. Þar getur Hannes Hólmsteinn farið upp í pontu og sagt: "Ég heiti Hannes Hólmsteinn og er frjálshyggjumaður. Ég er að reyna að segja skilið við hana og tek bara einn dag í einu. Ég veit að frjálshyggjan nærist á þeim vandamálum sem hún framleiðir sjálf. Ég er að reyna að vinna mig út úr vítahringnum. Þess vegna stend ég hér."
Blogg
Hannes Hólmstein á frjálshyggjusnúruna
08:56 › 14. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
