ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Það liggur eitthvað í loftinu

23:32 › 12. janúar 2009

"En hvað er það sem liggur í loftinu? Er það valdaþreytan í ríkisstjórninni? Hefur fólk fengið sig fullsatt á sjálfmiðuðu stjórnlyndi Davíðs Oddssonar og félaga? Mislíkar fólki hvernig gæðum og embættum ríkisins er úthlutað til flokksfélaga og gæðinga? Finnst því nóg komið af afskiptum stjórnarráðsins af fyrirtækjum og fjármálastofnunum landsmanna?
Öllum þessum spurningum má hiklaust svara játandi en þó er ekki nema hálf sagan sögð. Það væri mikil einföldun að halda því fram að þetta sé allt og sumt. Veruleikinn er talsvert flóknari. Það sem liggur í loftinu er krafan um að gefa stjórnmálunum og stjórnmálaflokkunum nýtt inntak og nýja ímynd."

"Það hefur dregið verulega úr trausti á öllum helstu stofnunum samfélagsins - ríkisstjórn, ráðherrum, alþingi, stjórnmálamönnum, stjórnmálaflokkum, lögreglu, kirkju, fjölmiðlum og menntastofnunum. Það kveður svo rammt að þessu að sjálft þjóðríkið nýtur ekki lengur trausts og þeim fjölgar sem draga í efa getu þess til þess að ráða flóknum verkefnum og vandamálum til lykta á farsælan hátt."

Höfundur: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í Borgarnesræðu 9. febrúar 2003.

HVAR ER SÚ INGIBJÖRG SÓLRÚN SEM SVO MÆLTI OG SAGÐI AÐ EITTHVAÐ LÆGI Í LOFTINU?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?