Allir sem hafa áhuga á íslenskum þjóðmálum, bankahruninu og hreingerningu í íslenskum stjórnmálum ættu að lesa grein í Fréttablaðinu síðastliðinni laugardag eftir Carsten Valgreen fyrrverandi aðalhagfræðing Danske Bank. Sá skrifaði skýrslu snemma árs 2006 um yfirvofandi hamfarir í íslenska fjármála- og bankakerfinu ásamt Lars Christensen. Báðir voru þeir starfandi hjá Danske Bank á þeim tíma.
GREININ ER SKYLDULESNING!
Carsten skrifar meðal annars:
"Áður en kreppan skall á leit út fyrir að íslenskt þjóðfélag byggi yfir virku og þróuðu fjármála- og stofnanaumhverfi, sjálfstæðum seðlabanka, eftirlitsaðilum og svo framvegis.Kreppan hefur aftur á móti leitt í ljós vanvirkni þessa umhverfis. Sem dæmi má nefna að það að hafa fyrrverandi forsætisráðherra sem formann bankastjórnar Seðlabanka Íslands hefur valdið stórslysi og í ljós hefur komið að Seðlabankanum er verr stjornað og er ósjálfstæðari en hann ætti að vera."
Carsten bendir réttilega á klíkueinkenni þessa þjóðfélags sem gæti sem best verið eitt stórt fyrirtæki sé litið til mannfjöldans.
"Ísland er lítið, einsleitt samfélag þarseminnbyrðis tengsl eru mikil. Þetta er bæði mikill styrkleiki og veikleiki. Þetta er rót kreppunnar. Slík samfélagsgerð virkar næstum eins og fjölskylda eða eitt fyrirtæki. Útilokun tiltekinna vandamála og ákvörðun um að þagga þau niður þróast mjög auðveldlega og af því leiðir að erfitt er að grípa inn í þegar þau hafa hreiðrað um sig."
Blogg
Að afhjúpa íslenskan fávitaskap
21:49 › 11. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
